Byrjað er að hleypa umferð hægt fram hjá umferðaróhappi sem varð við bæinn Geitaskarð í Langadal, norðan við Blönduós í dag. Þjóðvegur 1 var lokaður vegna slyssins en samkvæmt lögreglu skullu tveir bílar saman.
Miklar skemmdir urðu á bílunum en meiðsli á fólki talin minniháttar.
Umferðarstýring er á veginum.