„Oftar en ekki hefur sagan sýnt okkur að peningar hafa svipuð völd og tónlist: Þeir fara framhjá skynseminni. Þar af leiðandi bara ef þú ert nógu djöfulli ríkur þá geturðu bara tuddast yfir allt og alla og hægt og rólega þá ertu bara kominn með allar auðlindir þjóðarinnar þess vegna undir þínar hendur,“ segir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens sem tjáir sig um enska milljarðamæringinn Jim Ratcliffe og umsvif hans á Íslandi.
Ratcliffe er fjórði stærsti jarðeigandi á Íslandi á eftir opinberum aðilum og er með þekktar laxveiðiár eins og Hofsá og Selá á leigu. Bubbi er mikill fluguveiðimaður og hefur veitt á hverju sumri um árabil í Laxá í Aðaldal.
Bubbi blandaði sér inn í umræðu um Ratcliffe í byrjun vikunnar eftir að lögfræðingurinn og fyrrverandi forsetaframbjóðandinn Herdís Þorgeirsdóttir tjáði sig um hann í færslu á Facebook. Þar talaði hún meðal annars um hvað Ratcliffe væri stór jarðeigandi á Íslandi. Ratcliffe á 39 jarðir hér á landi, að hluta eða öllu leyti, meðal annars stórar og þekktar eignir eins og Grímsstaði á Fjöllum. Færsla Herdísar vakti mikil viðbrögð og var deilt nærri 350 sinnum af lesendum. Hún fór síðan í viðtal til Páls Magnússonar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni á sunnudaginn.
Rætt er við Bubba um umsvif Jims Ratcliffes í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þar er einnig rætt við framkvæmdastjóra fyrirtækisins Six Rivers, Gísla Ásgeirsson, sem svarar fyrir gagnrýni á viðskipti Jims Ratcliffes. Þáttinn má hlusta á hér:
Bubbi vill eignaupptöku og bann með lagasetningu
Eitt af því sem er áhugavert í málinu og þessari umræðu er að Jim Ratcliffe hefur ekki keypt neinar jarðir á Íslandi frá árinu 2019 þegar lög sett voru á Alþingi sem takmörkuðu slík jarðakaup. Jim Ratcliffe sagði þá sjálfur í viðtali við Magnús Geir Eyjólfsson fréttamann RÚV að hann myndi ekki kaupa fleiri jarðir á Íslandi þar sem hann mætti það ekki.
Samkvæmt þinglýstum gögnum um jarðakaup Ratcliffes og yfirlitum um fasteignir fyrirtækja hans á Íslandi hefur Ratcliffe ekki keypt neinar nýjar jarðir síðastliðin sjö ár.
Þegar Ratcliffe byrjaði að kaupa jarðir á Íslandi árið 2016 var Bretland enn í Evrópusambandinu, þar með hluti af Evrópska efnahagssvæðinu og var því ekki hægt að banna honum að kaupa land á Íslandi. Hann þurfti því ekki sérstaka undanþágu til að mega kaupa Grímsstaði á Fjöllum eins og kínverski fjárfestirinn Huang Nubo þurfti en fékk ekki á endanum.
Bubbi vill að íslenska ríkið taki jarðir Ratcliffes eignarnámi. Bubbi segir að hann telji líka að það eigi að banna Ratcliffe það með lögum að leigja fleiri laxveiðiár á Íslandi. „Þetta eru mistök, þetta eru geigvænleg mistök. [...] Með þessu móti getur þessi maður verið kominn með allar ár á Norðvesturlandi, á Austurlandi, hann getur fært sig allan hringinn og keypt hverja ána upp eftir annarri. [...] Mér finnst það bara ágætis lausn, að leyfa honum að halda Selá og Hofsá ef hann vill, en annað á bara að taka af honum og borga honum til baka. Taka þetta eignarnámi,“ segir hann.
Búið að banna frekari jarðakaup
Skilur Gísli Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Six Rivers, þessar miklu tilfinningar sem koma upp í þessari umræðu og hvað finnst honum um þessar hugmyndir um aðgerðir til að bregðast við viðskiptum Jims Ratcliffes á Íslandi?
Gísli segir: „Það sem veldur kannski furðu núna er að doktor í lögfræði [Herdís Þorgeirsdóttir] skrifar þetta án þess að minnast á þau lög sem voru sett, sem voru nú kölluð Ratcliffe-lögin í meðförum Alþingis, að það sé ekki minnst á þá takmörkun sem þegar er á orðin á því [takmörkun á kaupum á jörðum] sem þegar er orðin þónokkur og finnst mönnum nóg um sumum. [...] Að benda á þetta með þessum hætti, án þess að nefna þó þau lög - sem lögfræðingurinn hefði átt að vita að eru til - er svolítið skrítið. Ég veit ekki hvaðan þetta er sprottið upp af því þetta er svo einhliða og á köflum ósanngjörn umfjöllun. Við höfum ekki gert neitt annað en að fylgja lögum fyllilega,“ segir Gísli og bætir við að það sé þar af leiðandi rangt að stilla málinu upp þannig að jarðakaup Ratcliffes á Íslandi séu „stjórnlaus“.
Hann segist ekki vilja svara orðum Bubba um mögulega eignaupptöku og bann við leigu á laxveiðiám sérstaklega. Gísli segir að Bubbi megi hafa sínar skoðanir þó hann sé ósammála þeim.
Gísli segir að það eina sem vaki fyrir Six Rivers í íslenskum laxveiðiám sé tryggja verndun og vöxt laxastofnsins á Íslandi þar sem hann eigi undir högg að sækja.