Leiðtogar BRICS-ríkjanna, þar á meðal Kína, Indlands og Rússlands, kölluðu eftir stillingu í Miðausturlöndum á fundi sínum sem lauk í morgun. Íranar og Sameinuðu arabísku furstadæmin studdu líka ályktunina sem beinist að Bandaríkjunum.
Leiðtogar ríkjanna héldu fund á Indlandi um helgina þar sem meðal annars var rætt um aukið samstarf BRICS-ríkjanna. Narendra Modi forsætisráðherra Indlands sagði meðal annars á fundinum að ríkin hefðu reynt að stuðla að auknum hagvexti heimsins. Modi og Vladimír Pútín forseti Rússlands ræddu þar saman um að styrkja tengslin milli landanna.
Ályktun beint að Bandaríkjunum
Á þessum fundi tókst það sem ekki tókst á fundi utanríkisráðherra ríkjanna í maí - að ná saman um ályktun um stríðið í Miðausturlöndum. Fyrri dagurinn fór í miklar umræður og úr því kom ályktun þar sem miklum áhyggjum var lýst af áframhaldandi stigmöngnun í Miðausturlöndum og Vestur-Asíu. Farið var fram á að stríðandi fylkingar héldu að sér höndum eins og kostur væri og forðuðust aðgerðir sem gætu kynnt undir átök.
Íranar og Sameinuðu arabísku furstadæmin staðfestu bæði yfirlýsinguna, sem vekur athygli þar sem Íranar hafa ítrekað ráðist á bandarískar herstöðvar í furstadæmunum, sem svar við árásum Bandaríkjamanna á Íran. Ljóst er að ályktuninni er fyrst og fremst beint að Bandaríkjunum þó að það sé ekki sagt beinum orðum.
Fundurinn markaði líka þau tímamót að Xi Jinping forseti Kína kom til Indlands í fyrsta sinn í sjö ár. Miklar deilur hafa verið milli landanna um landamærin við Tíbet og blóðug átök urðu þar fyrir sex árum. Smátt og smátt hafa samskipti ríkjanna batnað og heimsóknin er birtingarmynd þess. Heimsókn Xi var þó mótmælt í Tíbet.