Það spáir bjartviðri austanlands í dag en skýjuðu veðri og dálítilli súld eða rigningu með köflum vestan til, einkum síðdegis. Suðlæg átt og víða 3–10 metrar á sekúndu en suðvestan 8–13 með suðausturströndinni. Hiti 10–19 stig.
Síðustu daga hefur hæðarhryggur yfir landinu valdið hægum vindum og mildu veðri en breytinga er að vænta í kvöld. Þá nálgast landið lægð sem hefur verið í myndun við suðausturströnd Grænlands. Hún ýtir hæðarhryggnum frá landinu.
Úrkomuskil ganga inn á suðvesturhorn landsins seint í kvöld og nótt með rigningu eða súld. Þá tekur líka að hvessa norðvestanlands með fremur ákveðnum norðaustlægum áttum. Úrkomulítið verður norðan- og austanlands fram eftir morgundeginum.
Á föstudaginn verða norðlægar áttir ríkjandi með vætu í flestum landshlutum og heldur kólnandi veðri, einkum norðanlands. Laugardagurinn verður svipaður, en þó verður þurrt að mestu suðvestanlands um og eftir hádegi og fremur hægur vindur þar.
Á sunnudag er útlit fyrir að lægðin verði búin að hreiðra um sig suðaustur af landinu. Þá eru líkur á áframhaldandi norðlægum áttum og talsverðri úrkomu norðan- og austanlands, en úrkomulítið verður vestanlands. Mánudagurinn verður svo svipaður en á þriðjudag styttir víða upp og hitatölurnar hækka á ný.