Miklar tafir á umferð hafa verið á Suðurlandsvegi við Hólmsá vegna vegaframkvæmda en verið er að fræsa og malbika veginn. Framkvæmdirnar hófust klukkan níu í morgun á Suðurlandsvegi við Hólmsá og standa til klukkan fimm.
Upphaflega stóð til að malbika báðar akgreinar Suðurlandsvegar í dag en verklaginu hefur hins vegar verið breytt vegna þeirra tafa sem hafa orðið á umferðinni segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.
Á samfélagsmiðlum hafa vegfarendur varað við töluverðum töfum. Umferð hefur verið stýrt fram hjá framkvæmdum og vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar.
Til stendur að malbika aðra akrein Suðurlandsvegar í dag en hin akreinin verður malbikuð að nóttu til. Nákvæm dagsetning liggur ekki fyrir en samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni verður ekki ráðist í þær framkvæmdir fyrr en eftir 20. maí.