Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands hefur samþykkt hernaðarstuðning við Sádí-Arabíu til að berjast gegn Hútum. Hann greindi frá þessu í samtali við fjölmiðlafólk í gær sem ferðaðist með honum á allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York.
Herstuðningurinn er afmarkaður við þjónustu við orrustuþotur Sádi-Araba. Ein bresk herflugvél, RAF Voyager, mun þjónusta orrustuþoturnar með eldsneyti á flugi og gæti aðgerðin varað í nokkrar vikur. Þessi aðgerð er viðbót við annan hernaðarstuðning Breta sem fyrir er í Sádi-Arabíu, Sky Sabre air defence system, en sú aðgerð snýr að loftvörnum.
Burnham sagði við fjölmiðla að með þessum stuðningi vildu Bretar tryggja hagsmuni Bretlands og svæðisins í heild. Sádí-Arabía hefði orðið fyrir árásum og stæði mögulega frammi fyrir frekari upplausn. Hann sagði að það þyrfti að tryggja að flutningsleiðir haldist opnar og því hefðu Bretar verið tilbúnir að bregðast við beiðni Sádi-Araba um stuðning.
Hútar, sem njóta stuðnings Írana, gerðu árás á Riyadh á laugardag í fyrsta sinn í mörg ár og árásin markaði stigmögnun átakanna. Hútar hafa sótt hart fram síðasta mánuð og náð stjórn yfir allri strandlengju Rauðahafsins í Jemen og sömuleiðis yfir Bab al-Mandab-sundi.