Reykjavíkurborg varar við svikaskilaboðum þar sem tilkynnt er um vangreidd bílastæðagjöld. Þau komi ekki frá Reykjavíkurborg.
Í færslu borgarinnar segir að lögregla beini þeim tilmælum til fólks að ýta aldrei á hlekki sem það fær senda sem eiga að varða greiðslur. Fólki sé ráðlagt að leita alltaf inn á viðurkennda síðu þess sem skilaboðin eiga að vera frá. Sektir frá lögreglu berast alltaf inn á island.is
Telji fólk sig hafa orðið fyrir svikum af þessu tagi og hafa tapað fjármunum er því bent á að hafa tafarlaust samband við sinn viðskiptabanka til að fá ráðgjöf og í framhaldinu tilkynna málið til lögreglu.
Þá minni lögregla á netbrotagáttina á island.is sem finna megi undir „samfélag og réttindi“. Þar sé bæði hægt að tilkynna netbrot til lögreglu sem og tilraunir til slíkra brota. Þá er fólk einnig hvatt til að tilkynna svik eða „report spam“ í skilaboðunum.