Perúsk blaða- og stjórnmálakona, Susy Aponte Polo, var skotin til bana á markaði í Caraz í Perú á laugardaginn. Hún var í framboði til embættis héraðsstjóra Áncash-héraðs og var að kynna sig fyrir kjósendum og dreifa kynningarefni ásamt stuðningsmönnum þegar árásin var gerð. Tveir aðrir særðust alvarlega í árásinni. Spænska dagblaðið El País greinir frá.
Polo vakti mikla athygli fyrir umfjöllun sína á samfélagsmiðlum um meinta spillingu hjá sveitarfélögum, opinberum stofnunum, saksóknaraembættinu og lögreglunni.
Í síðustu viku greindi hún frá því á samfélagsmiðlum að henni hefðu borist líflátshótanir símleiðis úr þremur fangelsum þar sem hún var vöruð við meintu samsæri um að taka hana af lífi. Hún sagði að líflátshótanirnar hefðu verið fyrirskipaðar af yfirmanni rannsóknardeildar lögreglunnar, Víctor Revoredo Farfán, eftir rannsóknir hennar á tengslum hans við spillingarmál.
Rannsókn á morðinu á Polo beinist meðal annars að því hvort líflátshótanirnar sem hún fékk tengist morðinu eða hvort önnur ástæða liggi þar að baki. Venesúelamaður var handtekinn nokkrum klukkustundum eftir árásina en hann er grunaður um að skotárásina á Polo.
Aukið ofbeldi gegn blaðamönnum
Ofbeldi gegn blaðamönnum í Perú hefur færst í aukana á síðustu árum. Samtök blaðamanna í Perú hafa skráð 140 árásir gegn blaðamönnum og fjölmiðlum frá janúar til byrjunar maí á þessu ári.
Árásirnar eru allt frá því að vera fordómafull orðræða og hótanir upp í líkamlegt ofbeldi og morðtilraunir. Á síðasta ári voru alls 458 árásir gegn blaðamönnum og fjölmiðlum. Þá voru fjórir blaðamenn myrtir en aldrei áður hafa svo margir blaðamenn verið myrtir á einu ári í landinu.