Leigubílstjórar á Bifreiðastöð Oddeyrar kveðja gömlu leigubílastöðina í vikunni, eftir rúm 70 ár í miðbæ Akureyrar. Samningar náðust við bæjaryfirvöld eftir áralangar deilur en starfsfólkið segir óvissuna vera óþægilega.
„Húsið er náttúrulega orðið gamalt og lúið en staðsetningin er eitthvað sem við eigum eftir að sjá virkilega eftir“, segir Lárus Páll Erlingsson, leigubílsstjóri og stjórnarmaður BSO.
Bifreiðastöð Oddeyrar hefur verið við Strandgötu síðan 1955 og mörgum Akureyringum er hlýtt til stöðvarinnar, þar sem er kaffistofa og símsvörun. Í áratugi hefur verið hægt að redda ýmsu smálegu í sjoppunni.
Þegar fréttastofu bar að garði var hún tómleg og verið var að reyna að koma út síðustu mjólkurfernunum.
Leigubílstjórarnir hafa undanfarna daga unnið að því að skipta út gamla BSO-merkinu fyrir merki nýs eiganda - Hreyfils. Hluti af eignum stöðvarinnar rennur til Iðnaðarsafnsins á Akureyri, en hinu þarf að pakka niður og finna stað - því stöðinni verður skellt í lás fyrir fullt og allt í lok vikunnar.
„Við hefðum haldið áfram að berjast við bæinn hefðum við bara getað það, við höfðum bara ekki efni á því, það verður bara að segjast alveg eins og er. Þar stendur hnífurinn í kúnni“, segir Hafdís Skjóldal, leigubílstjóri. Ástæður þess að þau hafi samið við bæinn séu fyrst og fremst fjárhagslegar.
Eftir áralangar deilur um hvort bærinn hafi með réttu mátt vísa BSO af lóðinni til að rýma fyrir nýbyggingum - var samkomulag loks undirritað fyrr í mánuðinum.
Slökkviliðið æfir reykköfun - en óvíst hvað verður svo um húsið
Akureyrarbær hyggst nú leyfa viðbragðsaðilum að nota húsið og slökkviliðið fær að vera hérna við reykköfunaræfingar, hvað verður svo er ekki alveg vitað. Mögulega á að færa húsið einhvert annað, en hvert eða hvenær er enn alveg óljóst.
BSO fellur frá dómsmálinu gegn bænum, sem greiðir þeim fimm og hálfa milljón fyrir afnot af húsinu. Eins segir í samningnum að bærinn greiði svo fyrir niðurrif þess - en í fundargerð er þó tilgreint að auglýsa eigi eftir áhugasömum til að flytja og endurbyggja það á nýjum stað.
„Hvar eigum við að vera?“
Bílstjórarnir fengu úthlutað fjórum bílastæðum fyrir utan verslun í miðbænum, en bílarnir eru fimmtán.
„Þú veist fjórir bílar er ekki neitt, hvar eigum við að vera? Svo benda þeir á bílastæðin hérna við hliðina, en eftir klukkan 5 eru þau bara öll full“, segir Hafdís og bætir við að bæjaryfirvöld hafi ekki hugsað málið til enda. Fólk reiði sig á þjónustu BSO í miðbænum og þar verði þau að hafa aðstöðu áfram;
„Í öllum samfélögum þar sem eru leigubílar er einhversstaðar leigubílaröð, einhver renna þar sem bílarnir koma og taka fólkið en Akureyrarbær virðist ekki ætla að gera það fyrir okkur.“
Páll Jóhann Kristinsson, leigubílsstjóri, segist deila áhyggjum kollega sinna.
„Ég sé ekki fyrir mér að sitja í bílnum allan daginn. Tala ekki um ef maður þarf að fara á klósettið, þá verður maður alltaf að fara á bensínstöð eða eitthvað“, segir Páll.
Jákvætt að fá nýja tækni og halda gamla símanúmerinu
Starfsmenn BSO eru þó nokkuð jákvæðir gagnvart því að ganga inn í Hreyfil, með því taki þau upp nýja tækni og hægt verði að bóka bíla í gegnum app. Sama gamla símanúmerið - 4611010 - verður enn virkt þó símsvörun verði í Reykjavík.
Viðskiptavinir BSO mega eins vænta þess að ferðirnar kosti nokkurn vegin það sama, gjaldskrár BSO og Hreyfils hafa verið mjög svipaðar. Mögulega verði aksturinn þó aðeins ódýrari, þar sem startgjaldið lækkar úr 950 krónum í 880 krónur.