Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi fjármála- og efnahagsráðherra, gerði stólpagrín að fundi Carls Baudenbacher og þeim sem þar voru samankomnir í færslu á Facebook. Grínið féll þó misvel í kramið og hefur Benedikt fengið bágt fyrir færsluna.Baudenbacher, sem er fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, hélt fyrirlestur um Ísland og Evrópusambandið sem haldinn var í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll á mánudag.Margmenni var á fundinum, þar á meðal einstaklingar sem voru áberandi í íslensku stjórnmálalífi á árum áður. Benedikt birti mynd frá fundinum og eftirfarandi færslu:
Benedikt fær á baukinn fyrir umdeilda færslu: „Hér er farið í manninn en ekki málið“