Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins en þar segir einnig að fundarstjóri sé Kristján Kristjánsson. Á fundinum muni Sveinbjörn Finnsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, kynna aðgerðaáætlun atvinnustefnunnar.Þá segir einnig að Gylfi Zoëga, fulltrúi í atvinnustefnuráði, sem og Karl Guðmundsson, verkefnastjóri stórfjárfestinga í forsætisráðuneytinu, flytji erindi. Í seinni hluta fundarins verður boðið upp á samtal Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra og Daða Más Kristóferssonar fjármála- og efnahagsráðherra við salinn.
Fundurinn hefst sem áður segir klukkan 8:30 og hann má sjá í beinni útsendingu í spilaranum hér að neðan: