HMS endurmetur lögum samkvæmt skráð matsverð allra fasteigna á Íslandi árlega og kynnir niðurstöðurnar fyrir öllum sveitarfélögum og eigendum fasteigna. Fyrirhugað fasteignamat mun taka gildi þann 31. desember á þessu ári og verður það notað til að reikna út fasteignagjöld fyrir árið 2027.
Dagskrá kynningarfundarins er eftirfarandi:
- Opnun fundar, Jónas Atli Gunnarsson, fundarstjóri
- Ávarp ráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra
- Kynning fasteignamats 2027, Hugrún Ýr Sigurðardóttir, teymisstjóri fasteigna hjá HMS
- Brunabótamat í samhengi fasteignamats og fasteignaviðskipta, Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri fasteignasviðs hjá HMS
- Fasteignamat: mikilvægt tæki fyrir fjármálastofnanir, Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
- Fasteignamat sem akkeri markaðarins, Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala
Fundinn má sjá í spilaranum hér að neðan: