Gunnar Haraldsson hagfræðingur og fyrrverandi formaður Fjármálaráðs sagði í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í gær að skýr merki væru um samdrátt í hagkerfinu. Lítill hagvöxtur ætti að vera áhyggjuefni og fullyrtu hann að staðan hér væri jafnvel verri en annarsstaðar í löndunum sem við berum okkur saman við.
Viðtalið má heyra að neðan.
Daði Már segist sammála Gunnari um að hagvöxtur sé of lítill og hafi verið það um nokkurt skeið. Þess vegna skipti höfuðmáli að það takist að byggja upp nýja atvinnuvegi og þar komi atvinnustefna stjórnvalda sterk inn.
Verðbólguhorfur ekki betri í lengri tíma
„En líka að við náum að leysa úr læðingi meiri fjárfestingu og það gerum við fyrst og fremst með því að ná tökum á verðbólgunni, ná henni niður, þannig að vaxtaumhverfið á Íslandi verði hagfelldara fyrir íslensk fyrirtæki.
Daði segir að það hafi komið glöggt fram í Peningamálum Seðlabankans sem komu út á dögunum að verbólguhorfur hafi ekki verið betri hér á landi um langt skeið.
„Það er auðvitað gríðarlega jákvætt og það er raunverulega það sem atvinnulífið þarf.“
Spár Seðlabankans gera ráð fyrir að hagvöxturinn verði 1% á þessu ári og 1,2% á því næsta.
Mikil þörf á fjárfestingu
Daði tekur undir með þeim sem segja þessa aukningu of litla á milli ára. „En þetta er samt ekki samdráttur,“ bætir ráðherrann við.
„Það í sjálfu sér er mjög jákvætt. En við bindum auðvitað vonir við að það verði mikil aukning. Það er að minnsta kosti fyrirséð að það er mikil þörf á mikilli fjárfestingu um leið og vaxtakjör batna og þau batna þegar verðbólgan lækkar.“
Og ráðherrann ítrekar að þar liggi stóra vandamálið: „Fyrst og fremst hefur vandamálið verið allt of mikil verðbólga allt of lengi,“segir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og tekur að lokum fram að það sé stóra verkefnið sem stjórnvöld takist á við.