„Banvænar buxur“ hafa vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Buxurnar virðast við fyrstu sýn aðeins vera venjulegar og þægilegar en þó eru þær ekki allar sem þær eru séðar og hafa fyrir vikið hlotið uppnefnið „banvænu buxurnar“.
Tískuhúsið Zara setti buxurnar nýverið á markað. Buxurnar hafa vakið mikla umræðu á meðal þeirra kvenna sem klæðst hafa buxunum vegna þeirra óhappa sem þær verða fyrir er þær klæðast þeim.
Sídd buxnanna virðist vera skaðvaldurinn en þær eru síðar, buxnaskálmarnar víðar og er því auðvelt að flækja sig í þeim.
Víðar buxur í tísku
Margar ungar konur hafa fjallað um reynslu sína af buxunum á samfélagsmiðlum og birt myndbönd þar sem þær sjást falla niður eftir buxnaflæking. Buxurnar eru í sniðinu „flowing wide-leg trousers“ og fást þær í hinum ýmsu litum.
Víðar buxur eru í tísku um þessar mundir. Zara er ekki eina tískuhúsið sem framleiðir álíka buxur og hafa margir stokkið á vagninn og fjárfest í einum víðum. Víðar buxur eru þó ekki allar banvænar en hugsanlega er betra að hafa varann á næst þegar stokkið er út í þeim í flýti.