Karol Nawrocki, forseti Póllands, hefur undirritað lög sem banna börnum að nota farsíma í grunn- og leikskólum. Pólska þingið samþykkti löggjöfina fyrr í mánuðinum og taka lögin gildi 1. september.
Lögin banna nemendum í bæði opinberum og einkareknum grunnskólum að nota farsíma og önnur snjalltæki sem geta miðlað samskiptum eða tekið upp hljóð og myndir. Leikskólabörnum verður einnig óheimilt að koma með eða nota slík tæki á meðan þau taka þátt í leikskólastarfi.
Bannið gildir í kennslustundum, frímínútum og annarri starfsemi á skólalóðinni, sem og í námsstarfsemi sem fer fram á vegum skólans utan skólalóðar.
Undantekningar veittar
Kennari getur veitt undanþágu þegar þörf er á vegna kennslu eða námsmats, þegar nemandi þarf nauðsynlega að hafa samband við foreldra sína eða þegar bráð hætta steðjar að heilsu eða lífi.
Skólastjórnendur geta einnig heimilað notkun tækja vegna veikinda, fötlunar eða annarra sérþarfa, þar á meðal ef nemendur nota snjallforrit eða annan búnað til að fylgjast með heilsu sinni. Sömu undanþágur geta átt við um leikskólabörn.
Farsímabannið gildir ekki um framhaldsskóla í Póllandi en þeim verður heimilt að setja eigin reglur um notkun farsíma og annarra snjalltækja.
Lagasetningin er hluti af aðgerðum pólskra stjórnvalda sem miða að því að vernda börn gegn stafrænni fíkn og skaðlegu efni á netinu. Stjórnvöld skoða meðal annars að takmarka aðgang barna yngri en 15 ára að samfélagsmiðlum og innleiða aldursstaðfestingu á klámsíðum.