Leikmenn á HM 2026 verða stöðvaðir frá því að fara að tæknisvæðinu til að ræða við þjálfara þegar markverðir meiðast, hefur yfirmaður dómaramála hjá FIFA, Pierluigi Collina staðfest.
Stöðva þarf leikinn þegar markvörður meiðist og hafa sumir þjálfarar nýtt sér hléið til að koma taktískum skilaboðum til leikmanna sinna.
Í nóvember sakaði Daniel Farke, knattspyrnustjóri Leeds United, til að mynda markvörð Manchester City, Gianluigi Donnarumma um að þykjast vera meiddur til að beygja reglurnar og stöðva leikinn.
Markvörðurinn sest á grasið og kallar á sjúkraþjálfara. Aðrir leikmenn hlaupa að tæknisvæðinu til að fá liðsfund og um leið og þjálfarinn hefur komið fyrirmælum sínum á framfæri stendur markvörðurinn einfaldlega upp og leikurinn heldur áfram.
IFAB hefur skoðað málið, en enn hefur engin reglubreyting verið samþykkt. Deildum hefur verið boðið að taka þátt í tilraunum á tímabilinu 2026–27 til að finna lausn á vandanum.
Dómarar munu bera ábyrgð á að framfylgja reglunni, en Collina sagði að leikmenn sem reyna samt að fara yfir til þjálfarans muni hvorki fá gult spjald né sæta agaviðurlögum.
„Það er dálítið einkennilegt að á vellinum séu í raun aðeins dómarinn, sjúkraþjálfarinn og markvörðurinn,“ bætti Collina við.
„Allir hinir leikmennirnir yfirgefa völlinn, og það er ekki gott.“
