Bandaríkjastjórn hefur hætt við áform um að senda fjögur þúsund hermenn til Póllands. Christopher LaNeve, starfandi herráðsforingi, greindi frá þessu frammi fyrir nefnd á vegum fulltrúadeildar þingsins án þess að tíunda frekar hvað veldur stefnubreytingunni. Ákvörðunin hefði þó verið það skynsamlegasta í stöðunni.
Dómsmálaráðuneytið tilkynnti fyrr í maí að minnst fimm þúsund hermenn yrðu kallaðir heim frá Þýskalandi eftir að Donald Trump forseti átti í orðaskaki við Friedrich Merz kanslara og gagnrýndi önnur ríki Atlantshafsbandalagsins fyrir skort á stuðningi við stríðið gegn Íran. Um tíu þúsund bandarískir hermenn eru í Póllandi, samkvæmt upplýsingum varnarmálaráðuneytis landsins.