Yfirvöld í suðurhluta Hormozgan-héraðs í Íran segja að Bandaríkjaher hafi gert árásir á Qeshm-eyju og Abadan í Persaflóa og fleiri staði í Íran í nótt.
Bandaríkjaher segir í færslu á X að herinn hafi gert þungar árásir á hernaðarlega innviði Íranska byltingarvarðarins. Árásirnar hafi verið svör við árásum Írana á bandarískar herstöðvar í Mið-Austurlöndum síðastliðinn þriðjudag, en öll írönsk flugskeyti hafi verið stöðvuð. Yfir 50 þúsund hermenn eru á vegum bandaríska hersins í Mið-Austurlöndum um þessar mundir.
Yfirvöld í Sádi-Arabíu kenna vopnuðum fylkingum í Írak um drónaárásir á hráolíuinnviði síðastliðna tvo sólarhringa. Jórdanski herinn segir að hann hafi stöðvar fimm írönsk flugskeyti sem beint var að bandarískum herstöðvum í landinu. Þá saka stjórnvöld í Ísrael Hezbollah-samtökin um að hafa gert drónaárás á farartæki Ísraela í Líbanon og segir árásina vera brot á vopnahléi.