Við rýnum í skýrsluna í hádegisfréttum Bylgjunnar og ræðum við einn höfund hennar.
Þá segjum við frá því að yfirfullir fangaklefar hafa reynst lögreglunni fjötur um fót við að stemma stigu við innbrotahrinu í borginni.
Og einnig segjum við frá fimm einstaklingum frá Kólumbíu sem nú sæta gæsluvarðhaldi en fólkið er grunað um smygl á fíknefnum hingað til lands.
Í sportpakka dagsins förum við yfir leiki Vals og Víkings sem eru framundan í Evrópukeppnum í fótbolta.