Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár - Vísir
⚠️ Eldri en 6 mánuðir
Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár - Vísir
📅 2026-04-22 16:58:57👁️ 5 lesið
Þetta herma heimildir Vísis en dómur þess efnis, sem kveðinn var upp þann 30. mars síðastliðinn, hefur ekki verið birtur. Aðalmeðferð í stærsta ketamínsmyglsmáli Íslandssögunnar hófst í Héraðsdómi Reykjaness í lok febrúar en í því var þremur gefið að sök að hafa staðið að innflutningi á fimmtán kílóum af ketamíni og fimm kílóum af MDMA-kristöllum í september síðastliðnum.
„Þetta er langmesta magn ketamíns sem lagt hefur verið hald á hér á landi. Efnin fundust í bifreið við eftirlit lögreglu og tollgæslu þann 19. september. Þrír voru handteknir vegna málsins, ökumaður og tveir aðrir. Allir þrír hafa sætt gæsluvarðahaldi frá því málið kom upp,“ sagði í fréttatilkynningu lögreglu sem barst fjölmiðlum um miðjan október.Þeir þrír sem setið hafa í varðhaldi eru þau Sandra Dorothea Becker, 56 ára Þjóðverji, Sokol Dushku, 32 ára, og Valmir Qeleposhi, 38 ára. Karlmennirnir tveir eru báðir frá Albaníu.
Leiddist út í smyglið vegna handtöku sonarins
Vísir fjallaði ítarlega um framburð sakborninganna við aðalmeðferðina en Sandra Dorothea sagði meðal annars að hún hefði leiðst út í málið af illri nauðsyn þar sem sonur hennar hefði verið handtekinn í Frakklandi og hún hefði þurft að afla peninga til þess að greiða lögmannskostnað hans.Hún hefði sett sig í samband við fólk og sótt til þess fjármuni til þess að greiða reikninga. Þá hefði fólkið sagt að hún þyrfti að fara í frí þar sem ljóst væri að henni liði illa. Hún ætti að sækja bifreið til Berlínar og aka henni alla leið til Danmerkur og taka Norrænu til Íslands.
Eftir að hún hefði skráð bifreiðina á eigið nafn hefði fólkið haft samband og tjáð henni að hún væri ekki í raun og veru á leið í frí, hún þyrfti að vinna verkefni fyrir það. Hún hefði alls ekki viljað gera það en fólkið hefði tjáð henni að það gæti fylgst með ferðum hennar. Þá hefði hún óttast fólkið og talið að það gæti skaðað eiginmann hennar eða son hennar í fangelsinu.Hún hefði átt að fá tvö til þrjú þúsund evrur fyrir ómakið, sem jafngildir um 290 til 340 þúsund krónum. Með því tók hún sénsinn á að hljóta allt að tólf ára fangelsisdóm. Samkvæmt heimildum Vísis fór sækjandi málsins á að hún yrði dæmd í sex til átta ára fangelsi.
Sagðist vera fórnarlamb
Þeir Sokol og Valmir hlutu talsvert þyngri dóm en Sandra Dorothea fyrir sinn hlut í málinu, eða sjö ára fangelsisvist. Í upphafi skýrslutöku fyrir dómi við aðalmeðferðin sagðist Sokol hafa búið hér á landi í þrjú og hálft ár og að hann ynni sem málari hjá Reykjavíkurborg. Hann byggi með meðákærða Valmir.Varðandi aðkomu sína að málinu vildi hann sem minnst segja þar sem hann væri aðeins fórnarlamb í málinu. Hann hefði verið notaður af manni sem hann hefði verið í samskiptum við í um ár fyrir handtökuna.
Maðurinn hefði oft sagt honum sögur af fíkniefnainnflutningi og af og til sendi hann frændfólk sitt eða vini hingað til lands til þess að taka á móti sendingum. Þá hringdi maðurinn stundum í hann og bæði hann um að aðstoða fólkið, til að mynda með því að lána því pening fyrir mat. Hann hefði haldið að hann væri að fara að aðstoða mann, sem væri hér á landi í ólöglegri dvöl, með því að hleypa honum inn í iðnaðarbil sem hann hafði umráð yfir. Þess í stað hefði Sandra Dorothea mætt með bíl fullan af fíkniefnum.
Valmir millifærði fleiri milljónir
Meðal þess sem til umræðu var við aðalmeðferðina voru millifærslur umtalsverðra fjármuna en í ákæru á hendur Valmir segir að hann hafi komið að innflutningi og fjármögnun fíkniefna, fyrst með því að greiða samtals 29.968 evrur, um 4,3 milljónir króna, í gegnum reikning sinn hjá fjármálafyrirtækinu Revolut á óþekktan mann í júní 2025, en fjármunirnir hafi verið endurgreiddir inn á sama reikning hans hjá Revolut nokkrum dögum síðar.Stuttu síðar hafi hann greitt 40.036 evrur, um 5,7 milljónir króna, í gegnum reikning sinn hjá Revolut inn á eigin bankareikning í albanska bankanum Union bank.Þá hafi hann flett upp ferðaleið frá Egilsstöðum til Hafnarfjarðar í smáforritinu Google Maps fimmtudaginn daginn eftir að Sandra kom til landsins og upplýsingarnar hafi borist henni í gegnum óþekkan mann.Loks hafi hann komið í iðnaðarbilið þar sem ákærðu Sokol og Sandra voru við bifreiðina með fíkniefnunum og skömmu síðar náð í kassa í bifreið sína sem innihélt iðnaðarryksugu og sett hana við bifreiðina með fíkniefnunum og setið áfram í bifreið sinni fyrir utan húsið á meðan ákærðu Sokol og Sandra hófu að fjarlægja fikniefnin úr bifreiðinni og gert Sokol viðvart þegar lögregla kom á vettvang.
Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði Noreg skítaland á kosningafundi í McMorran Place í Port Huron í Michigan nú í dag, sunnudaginn 25. október. Han...
Serbneski framfaraflokkurinn undir forystu Vučić hefur farið með stjórn landsins í hálfan annan áratug og Vučić sjálfur flakkað á milli embættis forsæ...
Kafla af Suðurlandsvegi verður lokað á annað kvöld, frá klukkan átta til miðnættis. Þetta kemur fram á síðu Vegagerðarinnar.Stefnt er að malbiksviðger...
Manchester United's fans sang their support for Michael Carrick during the 3-0 home defeat by Bournemouth, but voiced their opposition to virtually ev...
Jón sagði sig úr þingflokki Viðreisnar fyrr í mánuðinum en er áfram meðlimur í flokknum. Hann gerði skriflegt samkomulag við þingflokkinn um að styðja...
Aleksandar Vučić, fyrrverandi forseti Serbíu, viðurkennir ósigur í þingkosningunum sem fóru fram í landinu í dag. Hann segir fjöldahreyfingu stúdenta ...
Kjörstöðum var lokað klukkan átta að staðartíma í kvöld. Klukkustund fyrr höfðu 67,6 prósent kjósenda þegar greitt atkvæði samkvæmt umfjöllun Reuters....
Fossinn Gljúfrabúi nýtur vaxandi vinsælda meðal erlendra ferðamanna, en áður var fossinn vel falin perla sem fáir utan landsteinanna vissu af.Göngum u...
Fleiri alvarlegir öryggisgallar, eins og sá sem varað var við í PHP-forritunarmálinu í vikunni, eiga eftir að koma í ljós. Þetta segir Ingólfur Andri ...
Kjörstöðum í Brasilíu hefur verið lokað. Önnur umferð forsetakosninga fór fram í landinu í dag.Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum eru frambjóðendurnir, ...
Kjörstöðum í Brasilíu verður haldið opnum tveimur klukkustundum lengur en til stóð. Þeir áttu að loka klukkan fimm að staðartíma en verða opnir til kl...
En þetta tveggja áratuga starf sem hefur falið í sér að vera framkvæmdastjóri, skutlari, fjármálastjóri, tilfinningalegur öryggispúði og svo mætti len...
Árleg garðfuglakönnun félagsins Fuglaverndar hófst í dag og stendur til 24. apríl. Kannanir hófust 1994 og tilgangur þeirra er að afla upplýsinga um f...
Kosningarnar eru hnífjafnar samkvæmt síðustu skoðanakönnunum og fara fram í skugga mikillar pólitískrar skautunar sem birtist einna skýrast í því að f...
Hátíðin var sett á kaffihúsi í miðbænum í dag. Því næst var gengið á milli staða og viðstaddir fengu að njóta óperu á hverjum stað. Óperudagar standa ...
Kjörstöðum í Serbíu hefur verið lokað og búast má við fyrstu tölum eftir um tvær klukkustundir. Þingkosningar voru í landinu í dag og allt bendir til ...
Sæl og takk fyrir góða og mikilvæga spurningu. Það þarf ekki endilega að rjúfa öll tengsl við manneskjuna sem framhjáhaldið átti sér stað með til þess...
Meira en átta þúsund undirskriftir hafa safnast á undirskriftalista þar sem þess er krafist að gerð verði óháð úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundi...
„[Bókun 35] verður aldrei beitt þannig að hún víki til hliðar stjórnarskránni. Stjórnarskráin mun alltaf trompa hana,“ sagði Hafsteinn í Sprengisandi ...
Þingmaður Samfylkingar í Norðausturkjördæmi segir mikinn létti að innviðaráðherra ætli að bæta við fjármagni í Loftbrú. Sú upphæð sem hann hafi kynnt ...
Kartöflugeymslan var tekin í notkun 1952 og var notuð í tugi ára. Þar gátu íbúar geymt kartöflur sínar yfir veturinn. Húsið, sem kallast í dag Langhús...
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna Fréttin25. október 2026Inn...
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu Úkraínskur varnarmálaráðherra segir tenginguna nú stöðuga. Elon Musk segir að her landsins...
„Ég er hér. Með ykkur,“ skrifaði Machado á samfélagsmiðlum í dag. Bandamaður hennar, Edmundo González Urrutia, sem bauð sig fram gegn Nicolás Maduro í...
Lengi hefur verið deilt um hvort Egyptar hafi stundað mannfórnir við útfarir fyrstu konunga sinna.Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að þjón...
Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell Dularfullt geimfarGeimfar sem sást í vesturhluta Bandaríkjanna á þessu ári Mynd: Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjan...
Linda Dröfn, sem er 51 árs, hefur stýrt Kvennaathvarfinu í rúm fjögur ár en nýtt glæsilegt húsnæði athvarfsins var opnað fyrir nokkrum vikum. Í desemb...
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi lögreglumaður, segir viðbúið að skiptar skoðanir séu á fyrirætlunum. Gagnrýnisraddirnar séu þó ek...
Senn líður að hrekkjavöku sem vinnur sér sífellt sterkari sess sem tyllidagur hér á landi. Grasker og annar varningur tengdur hátíðinni er áberandi í ...
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins úr Suðurkjördæmi, segist deila áhyggjum íbúa á svæðinu vegna gjaldtöku á ferðamannastöðum. Staðrey...
Össur Skarphéðisson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra ræddi málefni Viðreisnar í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Sagði h...
„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrúna núna og fara í að styrkur á hvern fluglegg verði níu þúsund krónur,“ segir Eyjólfur í samtali við...
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal Tjaldbúðir hafa risið í Lissabon og Porto undanfarnar vikur vegna húsnæðisverðs. Mótmælin eru hlut...
Innviðaráðherra segir boðaðar breytingar á niðurgreiðslu Loftbrúar í endurskoðun.„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrú og fara þá í 9000 ...
Árásin átti sér stað á föstudag í Yvelines-héraði sem er rétt vestan við París í Frakklandi. Hinn grunaði á að hafa ekið um bæinn Trappes og skotið út...
A 15-month-old boy died at a home in Los Abrigos this morning, Sunday 25th October, despite efforts by emergency medical teams to save him.Guardia Civ...
Island Hopping in Greece and Where to Base Yourself pairs Mykonos and Paros for a seven-night Cyclades holiday. Mykonos delivers golden beaches, fine ...
Landsnet lætur gera ytri úttekt á slysi sem varð þann 30. september við tengivirki í Borgarfirði þegar ung kona varð fyrir rafstraumi. Slysið er til r...
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir lægðina ná mestri dýpt á seinnipart fimmtudags í stað föstudagsmorguns eins og var reiknað var með. Hann seg...
Mikið óveður hefur gengið yfir Suður-Noreg í dag en stormurinn Boelo hefur valdið mikilli rigningu og hvassviðri.Þúsundir heimila eru án rafmagns, tré...