Fíóna var einn dáðasti íbúi dýragarðsins og hafði slegið í gegn á samfélagsmiðlum. Hún var níu ára. Hún fæddist í dýragarðinum 2017, sex vikum fyrir tímann. Hún var einungis þrettán kíló við fæðingu en flóðhestar eru venjulega um 45 kíló. Barátta hennar vakti athygli um allan heim og varð myllumerkið #teamfiona eitt það vinsælasta á þeim tíma.
Á þriðjudag kastaði gestur dýragarðsins prjónuðum hatti upp í loft nærri búsvæði Fíónu. Hatturinn fór í loftviftu sem feykti hattinum yfir glerveggi og inn á búsvæðið. Þegar Fíóna sá hattinn át hún hann.
Meðferðin bar ekki árangur
Læknar garðsins reyndu að gefa henni ógleðislyf og losandi en lítið gekk. Ekki kom til greina að fara í uppskurð.
„Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að koma hattinum út úr meltingarvegi hennar reyndist þetta of mikið fyrir hana. Teymið okkar veitti henni mikla stuðningsmeðferð í dag til að reyna að bjarga henni en það bar ekki árangur,“ hefur CNN eftir Dave Jenike, forsvarsmanni dýragarðsins. „Við erum í áfalli.“
Harambe bjó í sama garði
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem dáður íbúi Cincinnati-dýragarðsins fellur frá en 2016 var górillan Harambe drepin eftir að þriggja ára strákur komst inn á búsvæði hennar. Eftir atvikið varð Harambe að stórstjörnu á internetinu þar sem fólk syrgði þennan stóra apa.
Algengt er að dýr borði aðskotahluti sem gestir dýragarða missa eða kasta til þeirra. Dæmi eru um kómódódreka sem át plastflösku og krókódíl sem át sólgleraugu.