Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi ritari Sjálfstæðisflokksins, alþingismaður og ráðherra, hefur hafið störf hjá Fenris Creations, áður CCP Games, í London.
„Um er að ræða eitt mest spennandi verkefni samtímans á sviði gervigreindar. Verkefnið snýst um hvernig samfélag okkar og hagkerfi mun breytast með áframhaldandi þróun gervigreindar, en á vettvangi Fenris eru einstök tækifæri til að prófa slíkar sviðsmyndir í öruggu umhverfi í nokkurs konar sýndarveruleika,“ segir Áslaug í færslu á Facebook.
Áslaug Arna á að baki langan feril í stjórnmálum. Hún var kjörin á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn 2016. Hún tók sér leyfi frá þingstörfum í fyrra til að leggja stund á MPA-nám við Columbia-háskóla í NewYork í Bandaríkjunum. Hún sagði svo af sér þingmennsku í júní. Hún gegndi hinum ýmsu ráðherraembættum á árunum 2019 til 2024, auk þess sem hún var ritari flokksins frá 2015 til 2019.
Sýndarhagkerfi EVE góður vettvangur fyrir prófanir
Í tilkynningu frá Fenris Creations segir að Áslaug muni leiða samstarf félagsins við rannsóknastofur á sviði gervigreindar, háskóla, stefnumótendur og lykilsamstarfsaðila um nýtt rannsóknarverkefni sem tengist EVE Frontier.
Þar segir að EVE Frontier geti orðið kjörinn prófunarvettvangur til að rannsaka hegðun háþróaðra gervigreindarlíkana í flóknu og síbreytilegu umhverfi, áður en þau verða hluti af daglegu lífi fólks.
„Markmiðið er að prófunarvettvangurinn verði mikilvægt framlag til rannsókna á gervigreind og um leið opna á nýtt hlutverk fyrir Fenris Creations og EVE Frontier. Í stað þess að reiða sig eingöngu á skammlífar hermanir er ætlunin að skapa vettvang þar sem hægt er að fylgjast með sjálfstæðum kerfum við aðstæður sem líkjast raunverulegu hagkerfi sem mest.“
Í meira en tvo áratugi hafi lifandi sýndarhagkerfi þróast innan EVE-heimsins, „með viðskiptum, framleiðslukeðjum, gjaldmiðlum, og hrávörumörkuðum, svo ekki sé minnst á bandalög, átök, svik, gróða og tap. Þessi heimur hefur mótast af hundruðum þúsunda raunverulegra þátttakenda með allri þeirri ófyrirsjáanlegu hegðun sem þeim fylgja.“