Björgunarbáturinn Björg í Rifi á Snæfellsnesi sinnti tveimur útköllum í dag. Björg var nýkomin til hafnar eftir fyrra útkallið þegar tilkynning barst um annað útkall.
Fyrra útkallið var vegna fiskibáts á Breiðafirði sem kviknað hafði í. Skipverjinn komst af heill á húfi en búið var að loka vélarrúmi bátsins og ræsa slökkvikerfi stuttu eftir að tilkynning barst.
Seinna útkallið var vegna aflvana báts vestur af Öndverðarnesi. Í tilkynningu Landsbjargar segir að engin hætta hafi verið á ferðum og báturinn verði dreginn til hafnar.
Myndirnar eru úr útköllum Bjargar í dag.