Aðalsteinn Bergdal leikari er látinn, 76 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 28. maí.
Aðalsteinn fæddist 1. desember 1949 á Akureyri og hóf leikferil sinn með Leikfélagi Akureyrar árið 1967. Árið 1979 hóf hann störf hjá Leikfélagi Reykjavíkur og starfaði þar og síðar hjá Þjóðleikhúsinu um árabil. Árið 1990 flutti hann á ný norður og lauk leikferlinum hjá Leikfélagi Akureyrar.
Á ríflega 50 ára ferli sínum sem leikari lék hann í vel á annað hundrað sýningum hjá atvinnuleikhúsunum þremur auk þess sem hann leikstýrði mörgum leiksýningum hjá áhugaleikfélögum víðs vegar um landið. Þá talsetti hann fjöldann allan af teiknimyndum, söng inn á hljómplötur og framleiddi barnaefni, m.a. fyrir Ríkisútvarpið.
Lék með LA frá árinu 1967
Aðalsteinn tók þátt í stofnun atvinnuleikhúss Leikfélags Akureyrar í upphafi áttunda áratugar síðustu aldar en hafði leikið með félaginu frá árinu 1967.
Þá tók hann virkan þátt og var ötull baráttumaður fyrir byggingu Borgarleikhússins og tók ásamt samstarfsfólki sínu hjá Leikfélagi Reykjavíkur þátt í mörgum miðnætursýningum í Austurbæjarbíói og fleiri verkefnum til að safna fyrir byggingu Borgarleikhúss.
Hann hlaut heiðursviðurkenningu Menningarsjóðs Akureyrar árið 2022 fyrir fjölbreytt og mikilsvert framlag til menningarlífs á Akureyri. Með Aðalsteini hverfur einnig af sjónarsviðinu hans annað sjálf, trúðurinn Skralli, sem skemmti börnum og fjölskyldum þeirra um land allt frá árinu 1974.
Aðalsteinn bjó í Hrísey síðustu árin. Hann lætur eftir sig sex börn, 19 barnabörn og 3 langafabörn.
