Greint var frá slysinu í dagbók lögreglunnar í morgun þar sem sagði að ekið hefði verið á gangandi vegfaranda í póstnúmeri 103. Ásmundur Rúnar Gylfason aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að konan hafi verið á veginum þegar ekið var á hana. Hann hafi ekki frekari upplýsingar um líðan hennar.Aðspurður hvort ökumaður sé grunaður um að hafa verið í símanum við akstur, ekið of hratt eða einhverjar aðrar ástæður fyrir slysinu segir Ásmundur málið í rannsókn. Hann hafi ekki upplýsingar um hvort búið sé að taka skýrslu af ökumanninum.
Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu - Vísir