Franskir fjölmiðlar slá upp í fyrirsögnum í dag Canicule, í tilefni öflugrar hitabylgju sem gengur yfir stóran hluta landsins næstu daga. Hitatölur gætu náð allt að 40 stigum víða í Evrópu um helgina.
Frakkar búa sig undir hitabylgju sem von er á að gangi yfir landið á næstu dögum. Samkvæmt spám veðurfræðinga er hitabylgjan ein sú sterkasta sem mælst hefur þar í landi á þessum tíma árs. Spáð er 34 til 38 stiga hita víða frá suðvesturhluta landsins til norðausturs en á einhverjum svæðum gætu hitatölur náð allt að 40 stigum.
Í aðdraganda hitabylgjunnar hafa heilbrigðisyfirvöld í Frakklandi gefið út appelsínugula viðvörun og hvatt íbúa sem viðkvæmir eru fyrir hita til að gæta varúðar. Þá hefur franska lestarfyrirtækið Transilien þegar varað almenning við mögulegum samgöngutruflunum sem hitinn gæti haft í för með sér.
Á Spáni og í Portúgal er einnig von á miklum hita á næstu dögum. Veðurfræðingar spá allt að 40 stiga hita í borgum á borð við Sevilla, Zaragoza og Cordóba á Spáni og inn með landinu í Portúgal. Þá gæti verið að hitastig fari ekki niður fyrir tuttugu gráður á næturna.
Á Ítalíu vara veðurfræðingar við heitu lofti sem berst til landsins frá Norður-Afríku og gæti valdið háum hitastigum í suðurhluta landsins.
Samkvæmt sérfræðingum er ólíklegt að hitabylgjan einskorðist við júní. Hækkun hitastigs á þessum tíma árs sé hluti af áframhaldandi hlýnun jarðar og loftslagsbreytingum.