Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, óskar Íslendingum til hamingju með þjóðhátíðardaginn, í kveðju sem birt er á Facebooksíðu bandaríska sendiráðsins á Íslandi.
Í kveðjunni minnist Rubio á varnarsamninginn milli ríkjanna og undirstrikar skuldbindingu Bandaríkjanna til varnarsamstarfsins sem hefur staðið í 75 ár.
Þá séu efnahagsmál önnur meginstoð undir samskipti ríkjanna.
Bandaríkin meti sambandið mikils og hlakka til að halda því áfram.