Hin íslenska fálkaorða er íslensk heiðursviðurkenning sem veitt er einstaklingum, bæði íslenskum og erlendum, en forseti Íslands sæmir íslenska ríkisborgara fálkaorðunni tvisvar á ári, 1. janúar og 17. júní. Í ár voru það átta karlmenn og sex konur sem hlutu heiðursmerkið. Var þetta í fjórða skipti sem Halla veitir riddarakrossinn eftir að hún tók við embætti forseta Íslands.
Að neðan má sjá lista yfir þau sem voru sæmd fálkaorðunni fyrr í dag.
1. Andri Snær Magnason, rithöfundur, fyrir skapandi störf í þágu framtíðar.
2. Anna Björnsdóttir, kórstjóri, fyrir störf að mennta-, menningar- og félagsmálum í heimabyggð.
3. Ásdís Thoroddsen, leikstjóri, fyrir framlag til miðlunar á íslenskri menningararfleifð.
4. Ásgeir Haraldsson, barnalæknir og prófessor emeritus, fyrir fjölþætt störf á sviði barnalækninga og ónæmisfræða.
5. Hákon Ingvi Hansson, dýralæknir, fyrir framlag til atvinnumála og samfélagsmála í heimabyggð.
6. Hrefna Sætran, matreiðslumeistari, fyrir frumkvöðla- og uppbyggingarstarf í matreiðslu og veitingahúsarekstri.
7. Hreinn Valdimarsson, hljóðmeistari, fyrir framlag til hljóðvinnslu og varðveislu hljóðminja.
8. Karólína Elísabetardóttir, bóndi, fyrir frumkvöðlastarf í baráttunni gegn riðu í sauðfé.
9. Kolbrún Elfa Sigurðardóttir, kennari og fornfræðingur, fyrir framlag í þágu menntamála og klassískrar menntunar.
10. Miyako Þórðarson, prestur, fyrir störf í þágu heyrnarlausra.
11. Ólafur Arnalds, jarðvegsfræðingur, fyrir frumkvöðlastarf í rannsóknum á íslenskri náttúru og miðlun þeirra.
12. Ólafur Ólafsson, fyrirliði og körfuknattleiksmaður, fyrir forystuhlutverk fyrir sína heimabyggð á krefjandi tímum.
13. Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Vitafélagsins - íslensk strandmenning, fyrir störf í þágu íslenskrar þjóðmenningar.
14. Þorsteinn Eggertsson,textahöfundur, fyrir framlag til íslenskrar dægurmenningar.