Rex Heuermann hlaut í dag þyngstu mögulegu refsingu fyrir að myrða átta konur hrottalega á Long Island í New York-ríki í Bandaríkjunum. Hann hefur hlotið viðurnefnið Gilgo Beach-raðmorðinginn.
Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu.
Heuermann var giftur íslenskri konu, Ásu Guðbjörgu Ellerup, sem hefur verið búsett í Bandaríkjunum nær alla tíð. Hún sóttist eftir skilnaði árið 2023.
Hann mun afplána þrjá lífstíðardóma auk 25 ára til lífstíðar. Dauðarefsing er ekki heimiluð í New York-ríki. Heuermann játaði í apríl að hafa myrt átta konur, kyrkt þær, bundið og dreift líkamsleifum þeirra meðfram afskekktum ströndum Long Island.
„Þú ert viðbjóðslegur og fyrirlitlegur, lítill maður, ef þú ert þá maður yfirleitt. Og þú ert heigull,“ sagði Timothy Mazzei dómari þegar hann kvað upp dóminn í réttarsal í Riverhead á Long Island.
Morðin framdi Heuermann um 17 ára skeið, á árunum 1993 til 2010. Það var ekki fyrr en árið 2010 sem einhver fórnarlambanna fundust við Gilgo-ströndina á Long Island að umfangsmikilli rannsókn var hrint af stað.
Konurnar sem Heuermann myrti hétu Melissa Barthelemy, Megan Waterman, Amber Costello, Maureen Brainard-Barnes, Sandra Costilla, Jessica Taylor og Valerie Mack. Þær voru á aldrinum 20 til 34 ára.