Bæjarstjóri Hornafjarðar segir nýjan vegkafla Hringvegarins yfir Hornafjarðarfljót stuðla að bættu aðgengi fyrir íbúa sveitarfélagsins. Enn eigi þó eftir að koma til móts við íbúa sem lýst hafa yfir áhyggjum af fyrirhuguðu veggjaldi.
Opnað verður fyrir vegkaflann með formlegum hætti á nýrri brú yfir Hornafjarðarfljót í næstu viku. Með honum styttist Hringvegurinn um tólf kílómetra en leiðin til Hafnar styttist um 14,6 kílómetra.
Hjalti Þór Vignisson tók við starfi bæjarstóra í maí. Hann segir veginn, sem á sér langan aðdraganda, vera mikla samgöngubót fyrir sveitarfélagið.
„Fyrstu hugmyndirnar komu fram fyrir aldamót og þá í tengslum við sameiningu sveitarfélaganna hérna í Austur-Skaftafellssýslu. Þessi vegur er í raun og veru hugsaður ekki síst til að bæta samgöngur innan sveitarfélagsins heldur einnig til að stytta vegalengdir í sveitarfélaginu. Þess vegna eru miklir svæðisbundnir hagsmunir tengdir þessum vegi.“
Stórt byggðamál fyrir samfélagið á Suðausturlandi
Hjalti segir nýja veginn stórt byggðamál fyrir samfélagið á Suðausturlandi. Með breytingunum verði vinnusóknarsvæði til að mynda aðgengilegra fyrir íbúa sem búa fjær höfn og fyrir þá sem sækja vinnu á Jökulsárlón.
„Þar er vaxandi atvinnustarfsemi þannig að þessi vegur hjálpar mikið til við að þjappa samfélaginu saman og þess vegna er mjög mikilvægt að það sé hagkvæmara fyrir íbúana að nýta sér þennan nýja veg,“ segir Hjalti.
Þrátt fyrir að íbúar sveitarfélagsins fagni styttri vegalengdum og bættum samgöngum um Hornafjörð hafa einhverjir lýst yfir áhyggjum af veggjaldi sem tekið verður til að standa undir fjármögnun framkvæmdarinnar.
Til stendur að hefja gjaldtöku 1. september. Stök ferð kostar 1.500 krónur en ódýrara verður fyrir þá sem fara oftar um. Hjalti telur brýnt að gerðar verði ráðstafanir sem tryggja það að hagkvæmara verði fyrir íbúa að nýta sér veginn.
„Svo er það líka álitamál að á heimilum eru bændur sem eiga kannski fólksbíl og líka stóran bíl sem þeir eru að nota til þess að sækja aðföng og fleira. Og það hefur verið sjónarmið líka hvort að heimili eigi að teljast sem einn notandi í staðinn fyrir að hver bíll teljist sem notandi,“ segir Hjalti.
„En við erum í samtali við Vegagerðina um þessa gjaldskrá og þau hafa alveg verið að hlusta á okkar sjónarmið. Þessi nýja gjaldskrá á að taka gildi í september og ég er bjartsýnn á að okkar sjónarmiðum verði mætt.“