Gunnhildur Sigurðardóttir er fjallkona Hafnarfjarðar í ár. Gunnhildur, sem er 85 ára gömul, segir útnefninguna vera mikinn heiður.
„Ég var bara svo hissa þegar hún Sunna hringdi í mig og sagði að það væri búið að útnefna mig sem fjallkonu Hafnarfjarðar. Og ég hugsaði með mér, ertu að grínast? Því gömul kona? Hvað á hún að gera upp á svið?“ segir Gunnhildur.
Þegar Gunnhildur steig á svið flutti hún ljóð eftir Stefán frá Hvítadal sem samið var við vígslu St. Jósefsspítala fyrir sléttum 100 árum. Ljóðið er Gunnhildi kært en hún starfaði á spítalanum í 40 ár, fyrst sem hjúkrunarfræðingur og síðan sem hjúkrunarforstjóri til þrjátíu ára.