Bandarísk yfirvöld segja að komið hafi verið í veg fyrir árás á UFC Freedom 250 bardagakvöldið sem haldið var við Hvíta húsið um síðustu helgi.
UFC Freedom 250 bardagakvöldið var haldið sem hluti af umfangsmikilli hátíðardagskrá í tilefni af 250 ára afmæli sjálfstæðisyfirlýsingar Bandaríkjanna. Viðburðurinn var einn af fyrstu stóru dagskrárliðum afmælisársins og verður fjöldi annarra viðburða á dagskrá fram að þjóðhátíðardeginum 4. júlí.
Samkvæmt upplýsingum var markmiðið að myrða Donald Trump forseta, JD Vance varaforseta og aðra stjórnmálamenn.
Samkvæmt viðtali Sky News Australia við Mike Wagenheim, fréttamann JNS í Washington, unnu FBI og Leyniþjónusta Bandaríkjanna saman að rannsókn málsins eftir að hafa fengið upplýsingar og heimildir til að rannsaka hóp á spjallforriti þar sem árásin var rædd. Ekki kemur fram hvaða forrit skipuleggjendur árásarinnar notuðu.
Sprengjudrónar og leyniskyttur
Að sögn fréttastofunnar fólst meinta áætlunin í því að nota dróna með sprengiefnum til að ráðast á byggingar í kringum Hvíta húsið og skapa þannig ringulreið. Þegar fólk flykktist út á göturnar áttu leyniskyttur síðan að bíða í launsátri og skjóta á fólk.
Hann sagði þó óljóst á þessu stigi hvort um sé að ræða raunhæfa áætlun sem aðilarnir hafi verið færir um að framkvæma eða hvort þátttakendur hafi aðeins verið að ræða hugmyndir sínar í lokuðum hópi.
Fimm handteknir
Samkvæmt Sky News hafa fimm af 23 einstaklingum í hópnum verið handteknir. Hópurinn hafi meðal annars verið samansettur af einstaklingum í Ohio, Kaliforníu og fleiri ríkjum Bandaríkjanna.
Gríðarleg öryggisgæsla
Að sögn Sky News var umfang öryggisgæslu við Hvíta húsið í aðdraganda UFC kvöldsins fordæmalaust.
Wagenheim sagðist aldrei áður hafa séð jafn umfangsmiklar lokanir á svæðinu, ekki einu sinni þegar þjóðarleiðtogar á borð við Karl III Bretakonung eða Benjamin Netanyahu heimsóttu Hvíta húsið.
Að hans mati hefði því verið afar ólíklegt að leyniskyttur hefðu getað komist í skotstöðu nærri svæðinu. Hann sagði þó að yfirvöld hefðu ekki getað tekið neina áhættu í ljósi fyrri morðtilrauna gegn Donald Trump og því brugðist hratt við þessum áformum.