Samstaða G7-ríkjanna um Úkraínu hefur sjaldan verið jafn mikil og nú. Leiðtogarnir náðu saman um aukinn hernaðarstuðning við Úkraínu og refsiaðgerðir gegn Rússlandi á þriggja daga fundi sem lauk í dag.
Eins og oft áður voru allra augu á Donald Trump forseta Bandaríkjanna. Tvisvar hefur hann farið fyrr af G7-leiðtogafundum og oft hafa samskiptin verið stirð.
Sumt gekk sinn vanagang í ár. Mörg handabönd, margir fundir við stórt hringborð og margar myndatökur. En stundum gafst tími fyrir gjafir eða smá rabb.
Friedrich Merz, kansalari Þýskalands, gaf Trump merkta Þýskalandstreyju. Hún er merkt 47 því Trump er 47. forseti Bandaríkjanna.
Þá upplýsti Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, kollega sína um það að hún væri hætt að reykja og fékk hún mikið hrós fyrir. „Ertu hætt! Bravó!“ sagðir Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Það sem hefur vakið hvað mesta athygli er hversu smurt fundurinn virðist hafa gengið. Trump hefur ekki alltaf gengið í takt við hina en í sameiginlegri yfirlýsingu sem var birt í dag er einhugur meðal leiðtoganna um óhagganlegan stuðning við Úkraínu.
Ríkin sjö heita auknum hernaðarstuðningi og þrýstingi á rússnesk stjórnvöld.
„Þetta er mikilvægt. Þetta er mikilvæg breyting. Ég tel þetta mikilvæga pólitíska breytingu,“ segir Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, sem var gestur á fundinum.
Einn sá allra árangursríkasti að mati Trumps
Merz Kanslari Þýskalands segir samstöðuna um Úkraína sjaldan hafa verið jafn mikla og núna í þessum hópi. „Og skilaboðin til Rússlands eru jafn skýr. Öll G7-ríkin auka þrýsting á Moskvu, meðal annars með refsiaðgerðum,“ segir Merz.
Gestgjafinn Emmanuel Macron Frakklandsforseti er að vonum ánægður með fundinn. „Þessi G7-fundur tókst vel, það er óumdeilanlegt. Hér kom fólk saman, átti efnismiklar viðræður og leiðtogarnir sem hér eru unnu í raun og veru saman,“ segir Macron.
Undir þetta tekur Trump. „Stórkostlega árangursríkur G7-fundur. Einn sá allra árangursríkasti, myndi ég segja. Fundurinn hefði ekki getað komið á betri tíma. Á sunnudag náðum við samkomulagi við Íran sem tryggir allt sem við ætluðum okkur, og miklu meira.“
Trump sagði þó skýrt að þetta væri ekki endanlegur samningur heldur viljayfirlýsing og ef stjórnvöld í Íran gerðu eitthvað sem honum mislíkaði hikuðu Bandaríkin ekki við að grípa aftur til hernaðar.