Velferðarnefnd Alþingis lagði fram frumvarpið um fasteignamatið og hefur það verið sett á dagskrá þingsins á morgun. Leggur nefndin til að matið miðist við gangverð eigna í febrúar 2023 en við það var miðað í fasteignamatinu fyrir 2024. Ekki voru innheimt fasteignagjöld í bænum árin 2024 og fimm. Engin fasteignakaup áttu sér stað í fyrra fyrir utan uppkaup Fasteignafélagsins Þórkötlu á íbúðarhúsnæði í bænum, segir í greinargerð með frumvarpinu. Þá segir að enn sé talsverð óvissa um hvenær næsti atburður verður og að ekki sé hægt að segja fyrir um hvenær hættuástandi í Grindavík ljúki.
Grindvíkingar hafa margir mótmælt sumum aðgerðum stjórnvalda, nú síðast á Austurvelli í síðustu viku þar sem þeir gagnrýndu ákvörðun fasteignafélagsins Þórkötlu um að eftir ágústlok verði heimild fyrrverandi íbúðareiganda til að gista í húsum sínum takmörkuð við tólf nætur í mánuði.
Kristín María Birgisdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi í Grindavík, sem nú rekur ferðaþjónustufyrirtæki sem býður upp á leiðsöguferðir um bæinn, leggur til að á meðan beðið er eftir að stjórnvöld leggi fram endurkaupaáætlun greiði fyrrum íbúðaeigendur fasteignagjöld gegn því að fá að vera í húsum sínum með fasta búsetu.
„Að fá að vera með fasta búsetu eins og margir hafa bara viljað, vilja bara fá að búa í bænum til að geta farið að byggja hann upp. Og ef þetta snýst um að það er verið að endurskoða áhættumatið og bíða eftir því, eða tryggingamálin, eða lánamál eða þess háttar, að þá finnst mér þetta bara skynsamleg lausn til þess að fá samfélagið aftur upp á lappirnar og bæjarfélagið að ná sér aftur fjárhagslega á strik og líka bara til að vernda þessa stóru fjárfestingu sem að ríkið fór í með uppkaupunum. Þannig að það eru bara margir sem myndu gjarnan vilja koma og fá að vera meira en leyfilegt verður eftir 1. september.“