Í kveðju sem er birt á Facebook-síðu bandaríska sendiráðsins óskar Rubio Íslendingum til hamingju með þjóðhátíðardaginn fyrir hönd Bandaríkjanna.
Í kveðjunni minnist hann meðal annars á að 75 ár séu liðin frá því varnarsamningur Bandaríkjanna og Íslands var undirritaður og segir það hafa tryggt stöðugleika á norðurslóðum.
Hann segir nýsköpun Íslendinga, meðal annars á sviði orkumála og gagnavera, knýja áfram viðskiptatækifæri sem gagnist þjóðunum báðum og segist hlakka til áframhaldandi árangurríks samstarfs.