Alfreð Ásberg framkvæmdastjóri Sambíóanna spyr hvað Ísland ætli að gera í þeirri hröðu þróun sem orðið hefur í kvikmyndagerð í heiminum. Segir Alfreð að áður hafi Hollywood verið miðpunkturinn þegar kom að kvikmyndagerð og ráðið ferðinni að mestu leyti. Staðan í dag sé allt önnur. Segir hann sífellt fleiri þjóðir átta sig á að kvikmyndagerð er ekki bara menning heldur stór atvinnugrein.„Lönd keppast um verkefnin með endurgreiðslum, skattaívilnunum og öðrum hvötum. Þau bíða ekki eftir verkefnunum, þau sækja þau.“
Alfreð segir Ísland ekki geta beðið eftir símtalinu: „Verkefnin eru þarna úti. Samkeppnislönd okkar eru þegar farin að sækja þau“