Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot fyrir að hafa ekið skotbómulyftara á aðra bifreið á horni Lækjargötu og Vonarstrætis í Reykjavík í september 2023 með þeim afleiðingum að ökumaður hennar lést.
Mbl.is greinir frá, en Hildur Sunna Pálmadóttir, sviðsstjóri ákærusviðs hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir að ákæran hafi verið gefin út í janúar. Aðalmeðferð verður fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í október.
Hinn ákærði ók lyftaranum undir áhrifum örvandi fíkniefna og var með gaffla vinnuvélarinnar í 70 sentímetra hæð. Gafflarnir stungust inn í hina bifreiðina og ökumaður hennar, pólskur maður á fertugsaldri, var úrskurðaður látinn á vettvangi.
Samkvæmt niðurstöðu rannsóknarnefndar samgönguslysa voru báðir ökumenn undir áhrifum lyfja þegar slysið varð.
Maðurinn lét eftir sig eiginkonu og þrjú börn. Fréttastofa ræddi við ekkju mannsins í desember, þar sem hún gagnrýndi seinagang rannsóknarinnar.