Í hugleiðingum veðurfræðings kemur svo fram að á morgun, mánudag, sé útlit fyrir áframhaldandi norðanátt með éljum um landið norðanvert. Strekkingsvindur verður um landið austanvert og svo gæti bætt í élin fyrir norðan um kvöldið. Veðurfræðingur segir hitatölurnar þá á niðurleið og að víða verði næturfrost.
Svo er útlit fyrir að þriðjudagurinn verði á svipuðum nótum, él fyrir norðan en að mestu bjartviðri syðra.
Nokkuð greiðfært er um landið allt en vegfarendur eru beðnir að athuga að mikið er um brotholur í vegum víðs vegar um landið og þarf því að aka með sérstakri gát. Þá eru sumir vegir á Vesturlandi og Vestfjörðum slæmir vegna aurbleytu. Hálkublettir eru á Fjarðarheiði. Nánar um færð á vef Vegagerðarinnar og veður á vef Veðurstofunnar.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag: Gengur í norðan 5-13 m/s með dálitlum éljum, en yfirleitt þurrt suðvestanlands. Hiti nálægt frostmarki að deginum, en að 7 stigum sunnan heiða. Bætir í élin um kvöldið.
Á þriðjudag: Norðan 5-13 og éljagangur, en þurrt að mestu sunnantil. Kólnar heldur, einkum fyrir norðan.
Á miðvikudag: Minnkandi norðlæg átt og dregur smám saman úr éljum. Bjart að mestu sunnanlands, en líkur á stöku éljum allra syðst. Hiti breytist lítið.
Á fimmtudag: Breytileg átt, þurrt að mestu og áfram svalt, en smáél austast.
Á föstudag: Breytileg átt og skýjað austantil, annars víða léttskýjað. Hiti svipaður.
Á laugardag: Útlit fyrir sunnanátt með vætu á vesturhelmingi landsins og hlýnandi veðri.