Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að í dag og áfram alla helgina verði hæglætisveður en þó megi búast við „strekkings suðaustanátt við suðvesturströndina og norðantil á Snæfellsnesi“. Hlýtt verði áfram í veðri en svalast við norður- og austurstöndina í þokulofti.
Sólin heldur áfram að gera vart við sig en í dag er spáð eilitlum skýjabökkum og hafgolu. Á morgun, sunnudag, má einnig búast við hægri breytilegri átt og hlýju lofti.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á sunnudag: Hæg breytileg átt eða hafgola og bjart með köflum, en þokubakkar við norður- og austurströndina. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast á suðvestanverðu landinu.
Á mánudag: Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Skýjað og væta með köflum, einkum síðdegis, en víða bjart norðaustanlands. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast í innsveitum fyrir norðan, en svalast austast.
Á þriðjudag: Norðaustan 5-13 m/s og yfirleitt bjart, en skúrir vestanlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast vestanlands.
Á miðvikudag og fimmtudag: Norðlæg átt, 3-8. Dálítil væta með köflum á Norður- og Austurlandi, en annars bjart með köflum og stöku skúrir syðra. Hiti 4 til 12 stig, mildast syðst.
Á föstudag: Útlit fyrir austlægri átt, skýjað austast og lítilsháttar væta, en annars skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti breytist lítið.