Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? - Vísir

Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? - Vísir

Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? - Vísir

Hljómar kunnuglega?

Þetta er eitt algengasta vandarmálið sem ég heyri þegar kemur að hármótun. Margar konur fjárfesta í vönduðum og jafnvel dýrum hitamótunartækjum, leggja mikinn metnað í greiðsluna en skilja svo ekkert í því hvers vegna hún endist ekki. Vissulega eigum við Íslendingar við sérstakan andstæðing að etja þegar kemur að hárinu. 

Raki, vindur og síbreytilegt veður geta verið algjör martröð fyrir nýblásið hár og fallegar krullur. Það er ekki alltaf hægt að kenna íslenska veðrinu um því sannleikurinn er sá að jafnvel besta hitamótunartækið getur ekki eitt og sér tryggt að greiðslan haldist. Það sem skiptir sköpum er það sem þú gerir áður en þú byrjar að blása, krulla eða móta hárið.

Þú getur nefnilega mótað hárið eins fallega og þú vilt en ef grunnurinn er ekki réttur er lítið sem heldur mótuninni uppi.

Hárið þarf sína eigin „skincare-rútínu”

Hugsum aðeins um húðumhirðuna okkar og förðunina. Við eigum rakakrem, serum, primer, farða, kinnalit, augnskugga,setting spray og margt fleira til að tryggja að förðunin haldist falleg yfir daginn. Við kaupum mismunandi vörur fyrir mismunandi tilgang og finnst það fullkomlega eðlilegt. 

Hvers vegna hugsum við ekki eins um hárið? Við kaupum okkur jafnvel rándýran hitamótunarbursta eða krullujárn en þegar kemur að því að fjárfesta í vörunum sem eiga að hjálpa greiðslunni að haldast þá viljum við helst að ein vara geri allt! Myndum við ætlast til þess að eitt andlitskrem kæmi í staðinn fyrir allar húð og förðunarvörurnar okkar? Varla.

Af hverju gerum við þá sömu kröfu til hársins? Rétt eins og góð húðumhirða og falleg förðun byggjast upp á nokkrum skrefum þarf hárið sinn undirbúning. Ein vara gefur fyllingu, önnur mótunarstuðning, hitavörn hjálpar til við að verja hárið og lokavörurnar sjá um áferð, festu og glans.

Hugsaðu um þetta eins og að byggja hús. Þú byrjar ekki á þakinu áður en grunnurinn er kominn! Samt er það nákvæmlega það sem við gerum þegar við krullum óundirbúið hár og úðum svo hárspreyi yfir í þeirri von að allt haldist á sínum stað.

Hér kemur lykilatriðið: Það er ekki til ein töfravara sem hentar öllum.

Fíngert og mjúkt hár þarf allt annan undirbúning en þykkt, gróft eða náttúrulega krullað hár. Leyndarmálið er ekki að nota sem flestar vörur heldur að velja réttu vörurnar og nota þær í réttri röð ásamt því láta þær vinna saman.

Grunnurinn byrjar í röku hári, hér verður mótunin til

Hefur þú velt því fyrir þér hvers vegna blásturinn hjá hárgreiðslufólkinu helst oft mun betur en þegar þú blæst hárið sjálf heima? Svarið liggur ekki eingöngu í hárblásaranum eða burstanum heldur líka í því sem við setjum í hárið áður en blásturinn hefst. 

Rétt undirbúið hár hefur betri forsendur til að halda lyftingu, fyllingu og þeirri lögun sem við mótum með hitanum. Hár er jafnmisjafnt eins og við erum mörg. Sumar konur eru með fíngert hár sem fellur niður á nokkrum mínútum, aðrar með þykkt hár sem þarf meiri stjórn og enn aðrar með náttúrulega liði eða krullur sem þær vilja draga fram. Þess vegna skiptir máli að velja mótunarvörur út frá hárgerðinni og því hvaða árangri við viljum ná.

Fíngert hár

Fíngert hár þarf gjarnan léttar mótunarvörur sem byggja upp fyllingu án þess að þyngja það. 

Hér viljum við sérstaklega skapa lyftingu við hárrótina og gefa lengdunum meiri mótunarstuðning. Góðir kostir eru Maria Nila Pure Volume Mousse, Maria Nila Volume Spray, JOICO JoiFull Volumizing Styler,Moroccanoil Root Boost og Matrix High Amplify Foam sem hjálpa til við að skapa fyllingu og lyftingu.

Normal hár

Venjulegt hár getur verið fallega mjúkt en samt átt erfitt með að halda blæstri eða krullum. Þá viljum við mótunarvörur sem gefa hárinu grip og festu án þess að gera það óþarflega þungt.

Maria Nila Styling Mousse, JOICO JoiWhip 7 og Matrix Food For Soft XXL Big N' Soft Mousse eru góð dæmi um vörur sem hjálpa til við að byggja upp góðan mótunarstuðning og fyllingu.

Hér er eitt fagráð sem ég vil sérstaklega leggja áherslu á: þegar við viljum að liðir, krullur eða uppsett greiðsla haldist allan daginn er ekki alltaf best að velja vörur sem gera hárið silkimjúkt. Í fermingar og brúðargreiðslum þarf grunnurinn gjarnan að hafa aðeins meiri stífleika og grip svo greiðslan haldi lögun sinni klukkustundum saman.

Þykkt hár

Þykkt hár þarf annars konar undirbúning. Þar er markmiðið gjarnan að ná stjórn á úfningi,frizzi, auðvelda blásturinn og skapa fallega hreyfingu án þess að hárið verði of fyrirferðarmikið. Þegar liðir, krullur eða uppsett greiðsla eiga að haldast lengi þarf jafnframt góðan mótunargrunn.

JOICO Dream Blowout Glass 72HR Frizz Fighter hjálpar til við að draga úr frizzi ásamt úfningi. Varan þarf hita frá hárblásara til að virkjast og hjálpar til við að verja hárið gegn áhrifum raka í allt að 72 klukkustundir. Redken Quick Blowout flýtir fyrir blæstri, auðveldar mótun hársins og veitir hitavörn. Hún hjálpar jafnframt til við að draga úr úfningi og gefur hárinu fallega, mjúka og glansandi áferð. 

Kérastase L'Incroyable Blowdry Hair Lotion gefur stjórn og sveigjanlega mótun og hentar fjölbreyttum hárgerðum. Þegar við viljum meiri festu og grip er Matrix Setter Mousse áhugaverður kostur sem hjálpar til við að byggja upp fyllingu og mótunarstuðning. Moroccanoil Volumizing Mousse gefur einnig fallega fyllingu og sveigjanlega festu, en fyrir náttúrulega krullað hár er Moroccanoil Curl Control Mousse góður kostur til að draga fram krullurnar og halda úfningi í skefjum.

Eftir blásturinn – mótunin sjálf

Þegar grunnurinn er tilbúinn kemur að mótuninni. Hvort sem þú notar krullujárn, sléttujárn eða hitamótunarbursta skiptir rétt tækni ekki síður máli en tækið sjálft.

Hitavörn er nauðsynleg áður en hitamótun hefst.Ef þú hefur ekki þegar notað vöru sem veitir viðeigandi hitavörn er mikilvægt að bæta henni við áður en þú notar hitatækin.

Mikill hiti getur þurrkað hárið, veikt það og aukið hættu á að það brotni. 

Hitavörn hjálpar til við að draga úr þeim skemmdum. Einnig eru líka til skemmtilegar vörur sem gera meira en að verja hárið.L’Oréal Professionnel Pli hefur slegið í gegn á TikTok og ekki að ástæðulausu. Þessi hitavirkjaða mótunarvara er algjör snilld þegar kemur að því að skapa fallega, endingargóða liði og krullur. Hún gefur hárinu fyllingu, grip og mótunarstuðning sem hjálpar greiðslunni að halda lögun sinni. 

Maria Nila Shaping Heat Spray er önnur áhugaverð vara sem sameinar hitavörn og mótunarstuðning. Hún virkjast við hita og hjálpar til við að móta hárið og gefa því betri festu. Moroccanoil Perfect Defense er hins vegar fiðurlétt hitavörn sem má nota bæði í rakt og þurrt hár til að verja gegn hitaskemmdum. Redken Thermal Spray High Hold sameinar hitavörn og sterka mótunarfestu og hentar þegar við viljum meira hald.

Létt hársprey á meðan þú mótar

Hársprey er ekki eingöngu lokaskref. Þegar við erum að vinna með krullur og sveigjur getur verið gagnlegt að nota létt eða miðlungssterkt vinnusprey sem veitir stuðning án þess að gera hárið strax stíft. 

Maria Nila Styling Spray, Moroccanoil Luminous Hairspray Medium og JOICO Flip Turn eru góð dæmi um slíkar vörur. Þær gefa létt hald og henta vel þegar við viljum geta haldið áfram að vinna með greiðsluna og varðveita náttúrulega hreyfingu.

Þegar hárið þarf meira grip

Hér erum við komin að vörum sem ég tel að nánast allir ættu að eiga í baðherbergisskápnum sínum! Áferðarvörur geta gert algjöran gæfumun, sérstaklega þegar hárið er mjúkt, erfitt að móta og greiðslan á það til að falla niður. Þær gefa hárinu þetta mikilvæga grip sem auðveldar okkur að móta það í þá átt sem við viljum. 

Þær eru sérstaklega frábærar þegar við erum að setja hárið upp í greiðslu eða flétta það því þær gera hárið meðfærilegra, auðvelda okkur að ná stjórn á því og hjálpa greiðslunni að haldast betur.

 Moroccanoil Dry Texture Spray, JOICO Hair Shake og Redken Touchable Texture eru frábær dæmi um slíkar vörur. Þetta eru sannkallaðar hjálparhellur í hármótun sem gefa fyllingu, áferð og grip án þess að gera hárið óþarflega stíft.

Lokaspreyið þegar greiðslan er tilbúin

Nú er komið að lokahnykknum eftir góðan undirbúning. Við viljum að mótunin okkar haldist eins lengi og mögulegt er. Rétt lokasprey getur skipt sköpum, sérstaklega í íslenskri veðráttu þar sem raki og vindur geta fljótt sett strik í reikninginn. 

Maria Nila Finishing Spray er frábær kostur þegar við viljum góða festu án þess að hárið verði óþarflega stíft. Þegar við þurfum hins vegar hámarksfestu, til dæmis fyrir uppsettar greiðslur, fermingar eða brúðkaup er Maria Nila Extreme Spray öflugur kostur.Svo eru það sérhæfðu spreyin sem geta gert gæfumuninn.

Redken Control Hairspray gefur sterka festu og hjálpar til við að verja greiðsluna gegn áhrifum raka á meðan Redken Anti-Frizz Hairspray hjálpar til við að halda frizzi í skefjum.

Mundu að það er munur á vinnuspreyi og lokaspreyi. Vinnusprey hjálpar okkur á meðan við mótum hárið en lokaspreyið sér um að festa útkomuna. Þegar greiðslan þarf að haldast heilan dag af veisluhöldum, dansi og íslenskri veðráttu eru extra strong-sprey það sem þarf.

Hárolíur fallegur lokapunktur

Nú kemur eitt af mínum uppáhaldsskrefum í hármótuninni! Hárolíur eru ekki bara fyrir þurrt hár eða til að gefa því næringu. Þær geta verið algjör galdur þegar við viljum fullkomna greiðsluna, losa um krullurnar, móta fallega, mjúka liði og gefa hárinu þennan dásamlega, fágaða glans.

Kérastase Gloss Absolu Glaze Drops, Maria Nila CICA Oil og Moroccanoil Treatment Light eru léttir valkostir sem henta vel þegar við viljum gefa fíngerðu hári glans án þess að þyngja það of mikið.

Kérastase Elixir Ultime L’Huile Originale, JOICO Luster Lock Glossing Oil og Moroccanoil Treatment Original gefa hárinu fallega mýkt og glans og hjálpa til við að halda úfningi í skefjum.

Fagráð: þegar krullurnar hafa kólnað alveg seturðu örfáa dropa af olíu í lófana og nuddar þeim saman. Renndu síðan fingrunum varlega í gegnum krullurnar og losaðu um þær þar til þú færð þessar fallegu, mjúku sveigjur sem við elskum svo mikið.Þannig fær hárið fallegan glans um leið og þú mótar lokaútkomuna. Farðu þó varlega með magnið, sérstaklega í fíngerðu hári því of mikil olía getur þyngt hárið og dregið úr lyftingu og fyllingu.

Leyndarmálið liggur í heildinni

Falleg og endingargóð hármótun byrjar með réttum undirbúningi. Mótunarvörurnar skapa grunninn, hitatækin gefa hárinu þá lögun sem við viljum og lokavörurnar fullkomna greiðsluna með fallegri áferð, festu og glans.

Rétt eins og í húðumhirðu og förðun skiptir máli að hvert skref vinni með því næsta. Þegar þessi skref vinna saman verður miklu auðveldara að ná fram fallegum blæstri, mjúkum sveigjum og krullum sem halda sér lengur. Leyndarmálið liggur því ekki bara í því hvernig þú krullar hárið, heldur í undirbúningnum og hvernig þú lýkur greiðslunni.

Fylgdu okkur á samfélgasmiðlunum: Regalofagmenn

#ekki #haldast #hverju #krullur #liðir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262952241d/af-hverju-haldast-ekki-lidir-krullur-i-harinu-

📰 Aðrar fréttir

Vikulokin: Mótmæli í Evrópu, bókasöfn, menntamál og tíðindaleysi á þingi
📅 24.10.2026 👁️ 1
Vikulokin: Mótmæli í Evrópu, bókasöfn, menntamál og tíðindaleysi á þingi
Mótmælin í Evrópu, PHP-málið, hugmyndir um breytingar á rekstri bókasafna og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, menntamál og tíðindaleysi á þingi er meða...
Met Police confirms it received 2019 letter with "number of claims" about Meghan's father
📅 24.10.2026 👁️ 1
Met Police confirms it received 2019 letter with "number of claims" about Meghan's father
The Met said it passed information to the duchess but did not share it with other law enforcement agencies.
„Lands­byggðin brjáluð“ og draugar í Laugar­dal - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 1
„Lands­byggðin brjáluð“ og draugar í Laugar­dal - Vísir
Þá verður rætt við þingmann stjórnarminnihlutans sem segir landsbyggðina brjálaða vegna málsins. Eyjólfur Ármannsson samgönguráðherra hafi lofað samrá...
Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi
📅 24.10.2026 👁️ 1
Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi
Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi Við­bún­aður víða um Frakk­land í dag. Hvað knýr and­stöð­una áfram? Hvernig hefur hún breyst? Rætt við f...
700 mótmæli skipulögð í Frakklandi í dag
📅 24.10.2026 👁️ 1
700 mótmæli skipulögð í Frakklandi í dag
Fjölmenn mótmæli eru fyrirhuguð í að minnsta kosti átta borgum á Ítalíu, á Spáni, í Portúgal, Albaníu og Austurríki.Yfirvöld í Frakklandi hafa hert ör...
Kim fór til Kína - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 1
Kim fór til Kína - Vísir
Kim fór um borð í lestina í Pjongjang, höfuðborg Norður-Kóreu, sem fór yfir nýju brúna sem liggur yfir Yalu-fljótið og endaði í kínversku borginni Dan...
Íslenska Trump-hatursæðið
📅 24.10.2026 👁️ 1
Íslenska Trump-hatursæðið
Íris Erlingsdóttir skrifar: Sérkennileg árátta hefur gripið um sig í íslenskri þjóðfélagsumræðu – að svara pólitískum skoðunum með skítkasti í stað ra...
Between quick wins and big dreams lies Burnham's biggest test, starting with the Budget
📅 24.10.2026 👁️ 2
Between quick wins and big dreams lies Burnham's biggest test, starting with the Budget
The prime minister might be dreaming of gold medals in 2040, but he must first navigate the difficult years in between, writes Laura Kuenssberg.
Orðið á götunni: Sleifarlag Sjálfstæðismanna í sveitarstjórnum – Seltjarnarnes á leið í gjörgæslu, Þór settur af? Bullandi tap í Hafnarfirði
📅 24.10.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Sleifarlag Sjálfstæðismanna í sveitarstjórnum – Seltjarnarnes á leið í gjörgæslu, Þór settur af? Bullandi tap í Hafnarfirði
Hrikaleg staða fjármála Seltjarnarnesbæjar er enn á ný komin á dagskrá eftir að sex mánaða uppgjör var birt nýlega þar sem halli á A-hluta bæjarins va...
Northern Olympics plan to get £7m in John Healey's first Budget
📅 24.10.2026 👁️ 2
Northern Olympics plan to get £7m in John Healey's first Budget
The full feasibility study will look in detail at how hosting the Games in northern England could work.
Explore Gran Canaria’s British heritage on a new free guided walk
📅 24.10.2026 👁️ 2
Explore Gran Canaria’s British heritage on a new free guided walk
Residents and holidaymakers can discover a different side of Las Palmas next week, with a bilingual guided walk exploring the city’s British connectio...
300 dumped mattresses cleared from Costa Calma streets
📅 24.10.2026 👁️ 2
300 dumped mattresses cleared from Costa Calma streets
Clean-up crews have removed 300 mattresses and 22 tonnes of bulky waste from Costa Calma this month, prompting an appeal for residents and businesses ...
Gianni Infantino: Fifa president says he is backed by 'vast majority' in world football
📅 24.10.2026 👁️ 1
Gianni Infantino: Fifa president says he is backed by 'vast majority' in world football
Fifa president Gianni Infantino laughs off questions about whether he considered resigning over the World Cup sell-off debacle.
Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað - Vísir
Um sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf í Frakklandi á þar sem yfirvöld reyna að stemma stigu við mótmælaöldu sem hefur farið vaxandi á síðustu ...
Augljós og marktæk aukning á sölu insúlínsprauta og nála
📅 24.10.2026 👁️ 2
Augljós og marktæk aukning á sölu insúlínsprauta og nála
Eftirspurn eftir insúlínsprautum og nálum heldur áfram áfram að aukast. Hægt er að nota sprauturnar til að sprauta peptíðum í líkamann, en borið hefur...
Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“
📅 24.10.2026 👁️ 2
Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“
Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“ Eftir árás tveggja palest­ínskra manna á ísra­elska her­menn á Vest­ur­bakk­anum boðar Benjamín Net­an...
Fimmtán ára drengur handtekinn eftir Facebook-færslur um borgarfulltrúa
📅 24.10.2026 👁️ 3
Fimmtán ára drengur handtekinn eftir Facebook-færslur um borgarfulltrúa
Lögreglan í West Midlands á Englandi handtók 15 ára dreng á heimili hans í Walsall 3. ágúst eftir að leiðtogi Íhaldsmanna í borgarstjórn Wolverhampton...
Vildu dæma og taka sakamenn af lífi samdægurs
📅 24.10.2026 👁️ 3
Vildu dæma og taka sakamenn af lífi samdægurs
Réttarfar var með öðrum hætti á Íslandi á fyrri öldum. Á 18. og 19. öld var fólk sent til afplánunar í fangelsi í Kaupmannahöfn enda ekkert fangelsi á...
British woman dies after trying to rescue sons swept away at sea in the Bahamas
📅 24.10.2026 👁️ 1
British woman dies after trying to rescue sons swept away at sea in the Bahamas
The children were subsequently rescued from the water, police say.
Vilja hækka samræðisaldur - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Vilja hækka samræðisaldur - Vísir
Ný stjórn Ungra Vinstri grænna fundaði í fyrsta skipti í gær en Ari Orrason var kjörinn formaður ungliðahreyfingarinnar um miðjan mánuð. Það vakti ath...
Íslenski lagerstjórinn sem kemur fram í hverri stórmyndinni á fætur annarri
📅 24.10.2026 👁️ 2
Íslenski lagerstjórinn sem kemur fram í hverri stórmyndinni á fætur annarri
Það eru margar stjörnur og kunnugleg andlit í kvikmyndinni Brink of War sem er nú í sýningum í kvikmyndahúsum landsins. Eitt kunnuglegu andlitanna er ...
Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn
📅 24.10.2026 👁️ 1
Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn
Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn Mynd: Shutterstock Steingrímur Ingi Björnsson, rafvirkjameistari, verslunar...
Telja brýnt að endur­skoða fækkun lögregluembætta - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Telja brýnt að endur­skoða fækkun lögregluembætta - Vísir
„Vestfirðir eru víðfeðmt og krefjandi starfssvæði þar sem miklar vegalengdir, erfiðar samgöngur og veðurfar gera oft og tíðum miklar og sérhæfðar kröf...
Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers - Vísir
Í umfjöllun Bild er haft eftir lögreglumanni að mikið tjón hafi orðið á húsinu og ólíklegt sé að hægt verði að bjarga því. Brunavarnarkerfi hafi farið...
Fyllir auð sæti í minningu besta vinar síns
📅 24.10.2026 👁️ 2
Fyllir auð sæti í minningu besta vinar síns
Sagan af Dean Perryman, hreyfingunni hans og vininum Rob rataði til Heimskviða gegnum einhvern samfélagsmiðilinn. Sagan var uppbyggileg og falleg þó a...
Þurfti að vara syni sína við eftir um­fjöllun um meintan eltihrelli - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Þurfti að vara syni sína við eftir um­fjöllun um meintan eltihrelli - Vísir
Þetta segir Valur Grettisson, blaðamaður á Heimildinni, þegar hann rifjar upp hvernig umfjöllun hans um mál Írisar Helgu Jónatansdóttur fór að hafa áh...
Pezeshkian hittir Pútín í Moskvu
📅 24.10.2026 👁️ 3
Pezeshkian hittir Pútín í Moskvu
Forseti Íran, Massoud Pezeshkian, fer til Moskvu, höfuðborgar Rússlands, í næstu viku til fundar við Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Íranskur ríkismi...
Missing wheel helps police solve hit-and-run case in south Tenerife
📅 24.10.2026 👁️ 2
Missing wheel helps police solve hit-and-run case in south Tenerife
A wheel left beside the road has helped the Guardia Civil trace a driver suspected of leaving a seriously injured moped rider without assistance after...
Lægðar­drag á leiðinni - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Lægðar­drag á leiðinni - Vísir
„Suður í hafi er víðáttumikil og djúp lægð á leið austur og verður hún yfir Skotlandi í kvöld,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Ísland...
SATURDAY WEATHER: Sunshine in southern resorts as trade winds strengthen
📅 24.10.2026 👁️ 2
SATURDAY WEATHER: Sunshine in southern resorts as trade winds strengthen
The Canary Islands can look forward to sunny spells and warm coastal temperatures today, Saturday 24th October, although northern areas will remain cl...
Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 5
Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds - Vísir
Kristín Hulda starfar sem sálfræðingur og Stefán sem rafiðnfræðingur en þau eru bæði 31 árs og hafa verið saman í rúm tvö ár. Kristín ræddi við blaðam...
Friður ekki í augsýn í Súdan
📅 24.10.2026 👁️ 5
Friður ekki í augsýn í Súdan
Stríðið í Súdan hefur stigmagnast undanfarnar vikur og friður er ekki í augsýn.Bæði súdanski herinn og RSF-uppreisnarherinn nota í auknum mæli dróna í...
Sverrir um Jasminu: „Jasmína flúði fjölmenninguna“
📅 24.10.2026 👁️ 4
Sverrir um Jasminu: „Jasmína flúði fjölmenninguna“
Sverrir Helgason segir Jasminu Vajzović Crnac hafa flúið fjölmenninguna í Bosníu og vísar til landsins sem dæmis um að fjölmenningarstefna gangi illa....
Frétta­tía vikunnar: MS, þungunar­próf og glaum­gosi - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Frétta­tía vikunnar: MS, þungunar­próf og glaum­gosi - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Óttar Guðmundsson skrifar: Eldfim erfðamál
📅 24.10.2026 👁️ 4
Óttar Guðmundsson skrifar: Eldfim erfðamál
Mynd Erfðamál eru viðkvæm og valda iðulega deilum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
📅 24.10.2026 👁️ 4
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði L...
56.000 heimili rafmagnslaus eftir fellibylinn Champi
📅 24.10.2026 👁️ 4
56.000 heimili rafmagnslaus eftir fellibylinn Champi
Yfir 56 þúsund heimili eru rafmagnslaus í Taívan eftir að fellibylurinn Champi fór þar yfir í gær. Einn lést og yfir fimm hundruð hafa slasast af völd...
US midterms: The rise of AI election ads in US midterms campaign
📅 24.10.2026 👁️ 2
US midterms: The rise of AI election ads in US midterms campaign
BBC Verify has tracked dozens of AI ads to assess how they are being used by campaigns in the midterms.
Annað dauðsfall af völdum ebólu í Kenía
📅 24.10.2026 👁️ 5
Annað dauðsfall af völdum ebólu í Kenía
Heilbrigðisyfirvöld í Kenía hafa tilkynnt um annað dauðsfall af völdum ebólu. Hin látna, kona á sjötugsaldri, var skyld manni sem lést af völdum ebólu...
France prepares for day of protest a week after nationwide riots
📅 24.10.2026 👁️ 4
France prepares for day of protest a week after nationwide riots
More than 70,000 police officers are to be deployed over fears protesters will defy restrictions on demonstrations.
Arrest made after fire at Hitler's Eagle's Nest retreat
📅 24.10.2026 👁️ 3
Arrest made after fire at Hitler's Eagle's Nest retreat
Around 200 emergency personnel are deployed to fight the blaze at the Nazi dictator's Alpine residence in Germany.
Arrest made after fire at Hitler's mountaintop Eagle's Nest retreat
📅 24.10.2026 👁️ 3
Arrest made after fire at Hitler's mountaintop Eagle's Nest retreat
Around 200 emergency personnel are deployed to fight the blaze at the Nazi dictator's Alpine residence in Germany.
Met investigates reports of letter detailing claims about Meghan's father
📅 24.10.2026 👁️ 5
Met investigates reports of letter detailing claims about Meghan's father
Scotland Yard opens an inquiry after the Duchess of Sussex said she was sent a letter containing "disturbing allegations".
Eldur í Arnarhreiðri Hitlers
📅 24.10.2026 👁️ 5
Eldur í Arnarhreiðri Hitlers
Mikill eldur braust út í Arnarhreiðrinu, sumardvalarstað Adolfs Hitlers í Bæjaralandi í Þýskalandi, um klukkan níu í gærkvöld að staðartíma. Enn er ba...
Tory activist in 'contract killing broker' claim had worked for party HQ
📅 24.10.2026 👁️ 5
Tory activist in 'contract killing broker' claim had worked for party HQ
Jack Ross was contracted to do social media work for the party until earlier this year, the BBC has been told.
Storm Boelo: Second storm to hit UK with amber warning issued for strong wind
📅 24.10.2026 👁️ 5
Storm Boelo: Second storm to hit UK with amber warning issued for strong wind
An amber weather warning has been issued for much of Scotland, parts of Northern Ireland and northern England, as Storm Boelo approaches.
Mótmæli boðuð í átta borgum í dag
📅 24.10.2026 👁️ 5
Mótmæli boðuð í átta borgum í dag
Hreyfing mótmælenda á Ítalíu sem kennir sig við 17. október hefur boðað til mótmæla í átta borgum á Ítalíu í dag, meðal annars Róm og Mílanó. Stúdenta...
Australian MP Helen Haines' condition improves after alleged car attack
📅 24.10.2026 👁️ 5
Australian MP Helen Haines' condition improves after alleged car attack
The Independent MP is now in a serious but stable condition, according to the Melbourne hospital.
Sjö saknað eftir að háhýsi hrundi til grunna
📅 24.10.2026 👁️ 5
Sjö saknað eftir að háhýsi hrundi til grunna
Að minnsta kosti sjö er saknað eftir að sextán hæða háhýsi hrundi til grunna í Naíróbí, höfuðborg Kenía í gær. Háhýsið er í Eastleigh-hverfinu, sem er...
Ingvar mótfallinn breytingum á Loftbrú
📅 24.10.2026 👁️ 5
Ingvar mótfallinn breytingum á Loftbrú
Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, er mótfallinn breytingu ríkisstjórnarinnar á fyrirkomulagi Loftbrúar eins og hún var kyn...