Nokkuð hefur kveðið að fréttum undanfarið þar sem vikið er að gagnrýni á lögreglu fyrir óhreyrilegan seinagang við rannsókn og kærumeðferð sakamála. DV fjallaði í vikunni um mál Ástríðar Kristínar Bjarnadóttur, sem sat 12 vikur í gæsluvarðhaldi sumarið 2023 vegna gruns um stórfelld fjársvik gagnvart fjölmörgum karlmönnum. en núna, þremur árum síðar hefur Ástríður hvorki verið ákærð né mál gegn henni felld niður.
Ævintýralegur seinagangur: Ákæra gegn Ástríði var í vinnslu haustið 2024 – Fleiri sláandi dæmi