Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar í borginni boðar fjölda nýrra aðgerða í skólamálum á kjörtímabilinu þar sem mikil áhersla verður lögð á mælingar.
Meðal þess sem borgarstjórnin vill ráðast í er að innleiða samræmt námsmat fyrir alla bekki auk samræmds lokaprófs úr grunnskóla.
Þetta má sjá á tímasettum verkefnalista sem meirihlutinn birti. Mun ný borgarstjórn gefa sér allt frá hundrað dögum upp í fjögur ár til að klára hverja aðgerð.
Á verkefnalistanum má einnig finna loforð um að efla íslenskukennslu fyrir starfsfólk dagheimila og leikskóla, mælanleg markmið um aukinn árangur í skólastarfi, tilraunaverkefni um símafrí í grunnskólum, einkunnagjöf á talnakvarða, læsisátak, opinbera birtingu niðurstaðna úr PISA og samræmdum mælingum grunnskólanna, og bættan námsgagnakost.
Þá ætlar meirihlutinn jafnframt að innleiða og efla móttökudeildir í grunnskólum fyrir börn sem flytja hingað til lands og þekkja hvorki íslenska tungu né íslenskt samfélag.
Bjarni Fritzson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins tók við formennsku í skóla- og frístundaráði borgarinnar.
Hann verður til viðtals í Síðdegisútvarpinu í dag um nýju áherslurnar í menntamálum.