Forstjóri íþróttarisans Adidas hefur beðist afsökunar á einsleitni lita á takkaskóm á heimsmeistaramóti karla í fótbolta. Hann segir vinsældir bleiku skóna hafa verið tilviljun af hálfu framleiðenda en bleiki liturinn var allsráðandi á mótinu.
Á blaðamannafundi Adidas í dag var Björn Gulden, forstjóri Adidas, spurður hvers vegna bleiki liturinn hefði verið jafn áberandi meðal leikmanna mótsins og raun bar vitni.
„Ég held að þetta sé tilviljun og ég vona að þetta gerist ekki aftur,“ sagði forstjórinn.
Gulden sagði litinn sjálfan ekki hafa komið sér á óvart. Frekar hefði verið óvænt hversu margir framleiðendur ákváðu að leggja áherslu á bleikan í aðdraganda mótsins. Þá viti skóframleiðendur yfirleitt lítið um fyrirætlanir keppinauta sinna áður en nýjar línur eru settar á markað.
„Við höfum engar upplýsingar um hvað Nike, Puma eða New Balance er að gera,“ sagði Gulden og bætti við að smásalar hefðu getað gripið inn í.
„En við heyrðum ekki neitt. Og ég held að engum hafi líkað þetta.“