Talið er að að minnsta kosti 12 þúsund umframdauðsföll í Evrópu megi rekja til hitabylgjunnar sem gekk yfir hluta álfunnar í júní.
AFP-fréttaveitan hefur greint tölulegar upplýsingar um fjölda umframdauðsfalla dagana 22.-28. júní í Belgíu, Frakklandi, Þýskalandi, Lúxemborg, Hollandi, Spáni og Sviss. Um 10 þúsund dauðsfall umfram meðaltal voru skráð í löndunum þessa daga.
Á Englandi og í Wales voru um 2.200 umframdauðsföll 18. til 28. júní rakin til hitabylgjunnar. Tölur sem sýna fjölda látinna gætu átt eftir að hækka þegar sambærilegar upplýsingar frá fleiri löndum liggja fyrir.
Gagnrýnir ríkisstjórnir fyrir aðgerðaleysi
Hans Henri P. Kluge, svæðisstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, í Evrópu, varar við frekari hitabylgjum því sumarið sé ekki yfirstaðið. „Þetta eru ekki náttúruhamfarir og þetta endurtekur sig á hverju ári vegna þess að of margar ríkisstjórnir eru enn að meðhöndla hita sem veðurfarslegt fyrirbæri frekar en heilsufarslegt neyðarástand,“ segir Kluge.
Hægt hefði verið að koma í veg fyrir flest dauðsföllin, leiðbeiningar hefðu verið birtar og staðreyndirnar tali sínu máli. „Ríkisstjórnir velja hvernig þær bregðast við næst og þetta sumar sýnir hvað er í húfi,“ segir Kluge.
Umframdauðsföll ekki fleiri síðan í covid-faraldrinum
Evrópsk stofnun sem hefur eftirlit með dánartíðni, European Mortality Monitoring (EuroMOMO), hóf að taka saman upplýsingar um dánartíðni árið 2020. Samkvæmt stofnuninni hafa aldrei verið skráð eins mörg umframdauðsföll og á fyrrgreindu tímabili.
Aðeins einu sinni áður hafa verið skráð fleiri dauðsföll í einni viku í Evrópu og það var í júlí 2022 þegar covid-faraldurinn geisaði.