Alþjóðaheilbrigðisstofnunin og Sóttvarnastofnun Afríkubandalagsins hafa sett á fót áætlun til að takast á við ebólufaraldur í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og nágrannaríkjum þess. Alls verður 518 milljónum bandaríkjadala varið í áætlunina sem verður tímabundin frá júní til nóvember.
Ebólufaraldri var lýst yfir 15. maí í norðausturhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó. Sjaldgæft afbrigði ebólu, bundibugyo, er talið hafa breiðst út um nokkurt skeið án þess að þess yrði vart.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir staðfest tilfelli ebólu vera 381. Látnir eru 64.
Faraldurinn hefur skekið þrjú héruð í norðausturhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó. Fyrstu tilfellin greindust í Ituri. Sóttvarnastofnun Afríku segir 90 prósent staðfestra tilfella hafa greinst þar og 76 prósent dauðsfalla. Í Úganda hafa 16 tilfelli verið staðfest og eitt dauðsfall þar með talið.