Mikið endurnýjuð og vel skipulögð íbúð á Kársnesinu í Kópavogi er til sölu. Íbúðin er á jarðhæð og það sem er sérstaklega heillandi við eignina er að henni fylgir sólríkur pallur og stór garður.Ásett verð er 65,9 milljónir. Íbúðin er 69 fermetrar og skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaaðstöðu og geymslu.
65,9 milljónir fyrir 69 fermetra íbúð á Kársnesinu