Andleg líðan ófaglærðra leikskólastarfsmanna er umtalsvert verri en líðan annarra hópa. Ófaglærðir leikskólastarfsmenn eru einnig í verri fjárhagsstöðu en launafólk í öðrum starfsgreinum.
Þetta kemur fram í nýrri könnun Vörðu, Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, sem kynnt var í dag. Könnunin, sem var lögð fyrir í júní 2025, lýsir fjárhagsstöðu ófaglærðs starfsfólks í leik- og grunnskólum, stöðu þess á húsnæðismarkaði, sem og andlegri og líkamlegri heilsu þess.
Tæplega helmingur má ekki við óvæntum útgjöldum
Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar ná fjórir af hverjum tíu ófaglærðum leikskólastarfsmönnum ekki endum saman. Það sama á við um þriðjung grunnskólastarfsmanna, en hlutfallið er hins vegar 30% hjá öðru launafólki.
Þá kveðst tæplega helmingur leikskólastarfsmanna, eða 49%, ekki geta mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum. Hið sama gildir um 37% grunnskólastarfsmanna og 30% annars launafólks.
Skuldastaða starfsmanna leik- og grunnskóla verri en annarra
Spurt var um skuldastöðu launafólks í könnuninni. Niðurstöður hennar benda til þess að hærra hlutfall þeirra sem starfa í leik- og grunnskólum sé með yfirdrátt og skammtímalán í samanburði við annað launafólk.
Þá á starfsfólk á leikskólum síður húsnæði (57%), bæði í samanburði við starfsfólk grunnskóla (64%) og annað launafólk (64%). Að sama skapi er hærra hlutfall leikskólastarfsfólks á almennum leigumarkaði, í leiguhúsnæði á vegum óhagnaðardrifinna leigusamtaka og hjá foreldrum eða ættingjum.
Andleg heilsa mælist umtalsvert verri
Í samanburði við aðra hópa mælist hlutfall þeirra sem búa við slæma andlega heilsu hæst á meðal ófaglærðra starfsmanna leikskóla, eða 38% á móti 23% grunnskólastarfsmanna og 29% hjá öðru launafólki.
Sérstaklega hátt hlutfall (28%) segist upplifa þreytu og orkuleysi alla daga og tæplega fimmtungur (18%) á í erfiðleikum með svefn nánast daglega.
Þar að auki finnur ríflega einn af hverjum tíu nánast daglega fyrir áhugaleysi, lystarleysi eða ofáti, einbeitingarskorti eða líður illa með sjálfan sig.