40% barnafólks á erfitt með að ná endum saman, 60% einstæðra foreldra geta ekki mætt óvæntum útgjöldum og 12% hafa ekki efni á að greiða fyrir þá leikskólavistun sem þau þurfa. Þetta sýna niðurstöður könnunar sem Varða - Rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins gerði meðal félagsfólks í ASÍ og BSRB og birt var í dag.
Þar kemur m.a. fram að þriðjungur foreldra í þessum tveimur stéttarfélögum býr við það sem kallast skortur á félags- og efnislegum gæðum, en í því felst meðal annars að geta ekki greitt reikninga á eindaga, geta ekki sinnt nauðsynlegu viðhaldi á heimili, geta ekki hitt fjölskyldu eða vini a.m.k. mánaðarlega eða borðað staðgóða máltíð annan hvorn dag.
Geta ekki greitt fyrir þá dagvistun sem þarf
12% foreldra geta ekki greitt fyrir eins langan vistunartíma í leikskóla og þörf er á, samkvæmt könnuninni, og fjórðungur einstæðra foreldra og innflytjenda hefur ekki efni á að senda börn sín í frístund.
Þá hefur fjórðungur foreldra ekki efni á að greiða kostnað við sumarnámskeið eða skipulagðar tómstundir barna sinna.
Þriðjungur ánægður með sveitarfélagið sitt
Í könnuninni var spurt um andlega líðan foreldra. Hún er mismunandi eftir hópum - 38% mæðra mælast með slæma andlega líðan á móti 29% feðra. Tæplega helmingur einstæðra foreldra metur andlega líðan sína slæma.
Í könnuninni kemur ýmislegt áhugavert í ljós. Til dæmis að innflytjendur eru oftar í fullu starfi en Íslendingar og einstæðir foreldrar eru miklu oftar í leiguhúsnæði en sambúðarfólk. Þá telur rúmlega þriðjungur foreldra að þjónusta sveitarfélags þeirra styðji við barnafjölskyldur.
Könnuninn sýnir að talsverður munur er á verkaskiptingu foreldra eftir kyni. Þannig sér umtalsvert hærra hlufall kvenna um að sækja og skutla börnum og þær eru líka oftar heima með þeim á starfsdögum, í fríum og í veikindum.
Gagnanna í könnuninni var aflað í rafrænni spurningakönnun í júní og júlí í fyrra og slík könnun er gerð af Vörðu á hverju ári. Hún var lögð fyrir félaga í 43 aðildafélögum ASÍ og BSRB sem í eru rúmlega 141.000. Hátt í 25.000 svöruðu könnuninni, þar af tæplega 6.000 sem eiga börn á leik- eða grunnskólaaldri.