16 ára drengur sem myrti fjóra í skotárás í framhaldsskóla í Georgíu í Bandaríkjunum árið 2024 var dæmdur í lífstíðarfangelsi í gær án möguleika á reynslulausn.
Drengurinn, Colt Gray, var 14 ára þegar hann gerði skotárás í Apalachee-framhaldsskólanum í bænum Winder og myrti tvo 14 ára nema og tvo kennara við skólann, auk þess sem hann særði níu aðra.
Gray hafði fengið riffil í jólagjöf frá föður sínum árið áður. Faðir hans Colin Gray var sakfelldur í mars á þessu ári fyrir manndráp og manndráp af gáleysi fyrir þátt sinn í árásinni, með því að hafa vísvitandi gefið syni sínum riffil og virt að vettugi hótanir sonarins um að gera árás á skólann. Fangelsisdómur yfir honum verður kveðinn upp síðar í vikunni.
Skotárásir í skólum eru ekki óalgengar í Bandaríkjunum. Ábyrgð foreldra hefur í auknum mæli verið til skoðunar í slíkum málum. Eitt slíkra mála var þegar foreldrar unglings sem skaut fjóra til bana í menntaskóla í Michigan árið 2021 voru dæmdir í 10-15 ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi árið 2024.