Stjórnvöld í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó áætla að 131 hafi látist af völdum ebólu af þeim 513 sem talið er að hafi smitast. Áður hafði verið greint frá því að 350 hefðu smitast og 91 látist.
Talsmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar greindi AFP-fréttastofunni frá því í dag að stofnunin hygðist halda neyðarfund til að ræða um veikina. Fundurinn verður haldinn síðar í dag.
Afríska sóttvarnastofnunin lýsti yfir í dag yfir að ebóla í Kongó og Úganda væri ógn við heilsufar í allri álfunni vegna hættunnar á að hún breiddist enn frekar út. Hún sagðist vera í samstarfi við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina um að samhæfa viðbrögð og forvarnir.